Umlungisi í Hafnarfjarðarhöfn.

IMO 8704975. Umlungisi ZRUC ex Örfirisey RE 4. Ljósmynd Magnús Jónsson 2024. Maggi Jóns tók þessa mynd af Umlungisi í Hafnarfjarðarhöfn í dag. Þetta er fyrrum Örfirisey RE 4 sem seld var til Suður Afríku í sumar og hefur fengið nafnið Umlungisi með heimahöfn í Cape Town. Togarinn var smíðaður árið 1988 í Kristiansund í … Halda áfram að lesa Umlungisi í Hafnarfjarðarhöfn. →

Aberdeen kom til Húsavíkur með salt

IMO 9313723. Aberdeen ex Wilson Aberdeen. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Flutningaskipið Aberdeen kom til Húsavíkur um kaffileytið með saltfarm en það kom hingað frá Ólafsvík. Skipið var smíðað í Slóvakíu árið 2009 og hefur áður borið nöfnin Wilson Aberdeen og Stortebeker. Aberdeen siglir undir fána Luxemborgar og er 2,451 GT að stærð. Lengd skipsins er … Halda áfram að lesa Aberdeen kom til Húsavíkur með salt →

Tjaldur og Rifsnes á Rifi

2158. Tjaldur SH 270 - 2847. Rifsnes SH 44. Ljósmynd Sigurður Friðfinnsson 2024. Sigurður Friðfinnsson tók þessa myndir í gærmorgun af línuskipunum Tjaldi SH 270 og Rifsnesi SH 44 þar sem þau liggja í blankalogni við bryggju á Rifi. Um Tjaldinn má lesa hér en Hraðfrystihús Hellisands keypti Rifsnesið til landsins árið 2013. Það hét … Halda áfram að lesa Tjaldur og Rifsnes á Rifi →

Sigurþór GK 43

1427. Sigurþór GK 43 ex Árni ÓF 44. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sigurþór GK 43 hét upphaflega Árni ÓF 44 og var smíðaður 1975 hjá Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd. Báturinn, sem var rétt tæplega 30 brl. að stærð, var smíðaður fyrir Árna sf. á Ólafsfirði en árið 1983 er hann seldur til Grindavíkur. Þar fær … Halda áfram að lesa Sigurþór GK 43 →

Tjaldanes GK 525

124. Tjaldanes GK 525 ex Gaukur GK 660. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Netabáturinn Tjaldanes GK 525 kemur hér til hafnar í Njarðvík sumarið 2004. Báturinn var smíðaður árið 1962 í Molde í Noregi fyrir Gauksstaði h/f í Garði og hét Jón Finnsson GK 506. Hann hét síðar Friðþjófur SU 103, Verðandi KÓ 40 og Verðandi … Halda áfram að lesa Tjaldanes GK 525 →

Ocean Albatros

IMO 9880661. Ocean Albatros. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024 Skemmtiferðaskipið Ocean Albatros kom til Húsavíkur snemma í morgun og stoppaði til hádegis. Skipið var smíðað í Kína og afhent í apríl á síðasta ári. Lengd þess er 104,4 metrar, breiddin 18,4 metrar og það mælist 8,181 GT að stærð. Skipið siglir undir fána Portúgal með heimahöfn … Halda áfram að lesa Ocean Albatros →