
Aníta KE 399 hét upphaflega Sigurfari SF 58 og var smíðaður úr eik í Halmstad í Svíþjóð árið 1954.
Báturinn sem var 39 brl. að stærð hét síðar Farsæll SH 30 og Örninn KE 127 áður en hann fékk nafnið Kári GK 146 sem hann bar í tæplega 40 ár.
Vorið 2005 var hann seldur til Dalvíkur þar sem hann fékk nafnið Aggi Afi EA 399. Síðar hét hann Aníta KE 399 og hefur legið lengi í Grindavíkurhöfn. Heitir Dúa II RE 400 á pappírum.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution