
Ísborg EA 159 úr Hrísey liggur hér við bryggju á Akureyri en það var Borg h/f. sem gerði hana út.
Báturinn hét áður Eyborg EA 59 en þegar Borg h/f keypti stærri bát og nefndi Eyborgu fékk þessi nafnið Ísborg EA 159.
Árið 1991 var báturinn seldur til Patreksfjarðar þar sem hann hélt nafninu en varð BA 477.
Hér má lesa nánar um bátinn sem upphaflega hét Gullþórir VE 39.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution