Sæfari TH 271

5525. Sæfari TH 271. Ljósmynd úr einkasafni. Hér gefur að líta Sæfara TH 271 í fjörunni framan við hafnarstéttina á Húsavík en bátinn, sem síðar varð ÞH 271, lét Héðinn Maríusson smíða fyrir sig í Hafnarfirði árið 1962. Sæfari var smíðaður í bátastöðinni Bárunni og var fjögur tonn að stærð og búinn 25 hestafla Guldner … Halda áfram að lesa Sæfari TH 271 →

Jón Ásbjörnsson RE að draga línuna

2750. Jón Ásbjörnsson RE 777 ex Ragnar SF 550. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2026. Jón Steinar tók þessar myndir í dag en þær sýna Jón Ásbjörnsson RE 777 þar sem hann var draga línuna um tvær mílur úti fyrir Stokkseyri. Jón Ásbjörnsson RE 777 var smíðaður í Bátagerðinni Samtak árið 2008 og er af gerðinni … Halda áfram að lesa Jón Ásbjörnsson RE að draga línuna →

Örfirisey RE 14

1030. Örfirisey RE 14. Ljósmynd úr einkasafni. Örfirisey RE 14 kemur hér að bryggju á Húsavík í febrúarmánuði árið 1967. Húsavík var fyrsta höfn sem hún kom í eftir heimsiglingu frá Hollandi þar sem skipið var smíðað, nánar tiltekið í Deest. Um Örfirisey má lesa hér og þar kemur m.a fram af hverju Húsavík var fyrsta höfnin … Halda áfram að lesa Örfirisey RE 14 →

Ágúst Guðmundsson GK 95

266. Ágúst Guðmundsson GK 95. Ljósmynd úr einkaafni. Hér kemur ein mynd frá síldarárunum og sýnri Ágúst Guðmundsson GK 95 úr Vogum koma drekkhlaðinn að landi á Raufarhöfn. Ágúst Guðmundsson GK 95 var smíðaður í Danmörku árið 1957 og var 55 brl. að stærð. Hann var smíðaður fyrir þá Guðmund, Magnús og Ragnar Ágústssyni í … Halda áfram að lesa Ágúst Guðmundsson GK 95 →