2618. Júpíter VE 161 ex Jóna Eðvalds SF 200. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Júpíter VE 161 sem hér sést í slipp í Reykjavík hét áður Jóna Eðvalds SF 200 og er í eigu Horneyjar ehf., félags sem er í sameiginlegri eigu Skinneyjar-Þinganess og Ísfélagsins. Júpíter var smíðaður í Noregi árið 1975 og bar nafnið Birkeland … Halda áfram að lesa Júpíter VE 161 í slipp
Year: 2025
Gleðilega páska – Happy easter
Í slipp á páskum. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Með þesssari mynd sem tekin var í gær fylgir páskakveðja til lesenda síðunnar um allan heim. With this photo from yesterday easter greetings are sent to readers all around the world. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking … Halda áfram að lesa Gleðilega páska – Happy easter
Selfangarinn Havsel á Akureyri
IMO 7817256. Havsel F 169 A ex Meridian II. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Norski selfangarinn Havsel F 169 A var á Akureyri í gær en samkvæmt AIS er hann nú á siglingu til Tromsø sem er hans heimahöfn. Ég hef áður myndað bátinn í höfn á Akueyri og ef minnið svíkur ekki var það árið … Halda áfram að lesa Selfangarinn Havsel á Akureyri
Lista kom til Þorlákshafnar í gær
IMO 9503627. Lista ex Eurocargo Catania. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Flutningaskipið Lista kom til Þorlákshafnar í gærmorgun og tók Jón Steinar þessar myndir við það tækifæri. Svo segir á síðu ljósmyndarans Báta og bryggjubrölti: Smyril Line tók Lista á leigu eftir að skip þeirra Glyvursnes skemmdist af völdum eldsvoða í byrjun janúar. Það kemur til … Halda áfram að lesa Lista kom til Þorlákshafnar í gær
Jósef Geir ÁR 36
1266. Jósef Geir ÁR 36. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Jósef Geir ÁR 36 er hér á toginu en hann var smíðaður í Skipavík í Stykkishólmi árið 1972. Jósef Geir var smíðaður fyrir Hraðfrystihús Stokkseyrar hf. sem gerði bátinn út alla tíð. Báturinn var 47 brl. að stærð með heimahöfn á Stokkseyri. Jósef Geir ÁR 36 sökk … Halda áfram að lesa Jósef Geir ÁR 36
Glaður SU 97
1910. Glaður SU 97 ex Gestur SU 160. Ljósmynd Vigfús Markússon. Glaður SU 97 hét upphaflega Gestur SU 160 og var smíðaður árið 1988 hjá Baldri Halldórssyni skipasmið á Híðarenda við Akureyri. Báturinn var gerður út frá Djúpavogi til ársins 2020 en þá var hann seldur til Þorlákshafnar þar sem hann fékk nafnið Stórborg ÁR 1. … Halda áfram að lesa Glaður SU 97
Ásgeir SH 150
950. Ásgeir SH 150 ex Gísli Gunnarsson II SH 85. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Ásgeir SH 150 hét upphaflega Farsæll II EA 130 og var smíðaður fyrir Hríseyinga í Skipasmíðastöð KEA árið 1964. Báturinn, sem er 18 brl. að stærð, var seldur til Húsavíkur síðar það ár og kom þangað í byrjun desember. Kaupandi var Útgerðarfélagið Vísir h/f … Halda áfram að lesa Ásgeir SH 150
Tjaldur BA 68
5668. Tjaldur BA 68 ex Guðný HF 68. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Tjaldur BA 68 hét upphaflega Sigursæll RE 219 og var smíðaður í Bátalóni í Hafnarfirði árið 1955. Árið 1967 var Sigursæll, sem er 5,38 brl. að stærð, kominn vestur í Reykhólasveit og varð BA 219. Árin 1969 til 1977 var Sigursæll ÁR 47 … Halda áfram að lesa Tjaldur BA 68
Erlingur SF 65
1379. Erlingur SF 65 ex Haförn EA 955. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Erlingur SF 65 var smíðaður hjá Slippstöðinni á Akureyri 1974 og hafði fengið nafnið Kópanes BA 99 þegar hann var sjósettur. Báturinn var upphaflega smíðaður fyrir Einhamar hf. á Bíldudal en áður en til afhendingar kom seldi fyrirtækið bátinn til Mumma hf. í Sandgerði … Halda áfram að lesa Erlingur SF 65
Poseidon EA 303
1412. Poseidon EA 303 ex Harðbakur EA 303. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2011. Hér liggur rannsóknarskipið Poseidon EA 303 við bryggju á Akureyri í aprílmánuði árið 2011. Harðbakur EA 303 var smíðaður í San Juan skammt frá San Sebastian á Norður-Spáni fyrir Útgerðarfélag Akureyringa h/f. Harðbakur, sem var síðastur Spánartogaranna sex af stærri gerðinni, kom til … Halda áfram að lesa Poseidon EA 303









