IMO 9287766. Wilson Perth ex Arklow Resolve. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Flutningaskipið Wilson Perth kom til Húsvíkur í gærkveldi og lagðist að Bökugarðinum þar sem skipað er upp hráefnisfarmi fyrir kísilver PCC á Bakka. Wilson Perth var smíðað í Hollandi árið 2004 og er 90 metra að lengd. Breidd þess er 14,2 metrar og það mælist 2,999 … Halda áfram að lesa Wilson Perth við Bökugarðinn
Year: 2024
Geiri Péturs ÞH 344
1207. Geiri Péturs ÞH 344 ex Sigurbergur GK 212. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1980. Hér koma myndir af Geira Péturs ÞH 344 koma til hafnar á Húsavík vorið 1980 og ef ég man rétt var hann á grálúðuveiðum og línan var beitt um borð. Geiri Péturs ÞH 344 var smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri 1971 og … Halda áfram að lesa Geiri Péturs ÞH 344
Særún EA 202
1174. Særún EA 202 ex Dröfn SI 67. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Særún EA 202 hét upphaflega Dröfn SI 67 og var smíðuð á Siglufirði árið 1971. Tæplega 9 brl. súðbyrðingur. Dröfn var seld frá Siglufirði á Hauganes árið 1987 þar sem hún fékk nafnið Særún EA 202 en myndin hér að ofan er tekin um … Halda áfram að lesa Særún EA 202
Ný Clepopatra 36 til Noregs
Varde VL-94-AV. Ljósmynd Trefjar 2024. Útgerðarfélagið Tøkje Båt AS í Austevoll í Noregi fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 36 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Það er Ole Tøkje sem stendur að útgerðinni en hann verður jafnframt skipstjóri á bátnum. Nýj báturinn heitir Varde og er 10.99 metrar á lengd og mælist 11 … Halda áfram að lesa Ný Clepopatra 36 til Noregs
Áskell að draga netin
298. Áskell ÞH 48. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1982. Áskell ÞH 48 frá Grenivík er hér að draga netin á vetrarvertíð árið 1982. Áskell ÞH 48 var smíðaður fyrir Gjögur h/f á Grenivík í Danmörku 1959, ári eftir að fyrirtækið missti Von TH 5. Von strandaði við Reykjanes árið 1958, mannbjörg varð en báturinn eyðilagðist. Áskell … Halda áfram að lesa Áskell að draga netin
Loftur Baldvinsson EA 124
144. Loftur Baldvinsson EA 124. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1963. Loftur Baldvinsson EA 124 frá Dalvík liggur hér í höfn á Akureyri í október 1963 en hann kom nýr til heimahafnar í ágústmánuði það ár. Í Degi á Akureyri sagði svo frá þann 9. ágúst 1963; Hinn 16. júlí kom nýtt 225 tonna stálskip til Dalvíkur. … Halda áfram að lesa Loftur Baldvinsson EA 124
Óli á Stað GK 99
2841. Óli á Stað GK 99. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2015. Línubáturinn Óli á Stað GK 99 kemur hér að landi á Siglufirði vorið 2015 en hann var smíðaður hjá Seiglu á Akureyri 2014. Báturinn, sem er 14,8 m. að lengd og 5,6 m breiðu, er 29,63 BT að stærð. Óli á Stað GK 99 var … Halda áfram að lesa Óli á Stað GK 99
Gunnar Bjarnason SH 25
144. Gunnar Bjarnason SH 25 ex Hagbarður KE 116. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Hér kemur Gunnar Bjarnason SH 25 að landi í Ólafsvík en báturinn var smíðaður í Noregi 1963 fyrir Aðalstein Loftsson á Dalvík. Hann nefndi bátinn Loft Baldvinsson EA 124. Síðar hét hann Baldur EA 124, Baldur RE 2, Hagbarður KE 116 og loks Gunnar … Halda áfram að lesa Gunnar Bjarnason SH 25
Happasæll KE 94
38. Happasæll KE 94 ex Drangur. Ljósmynd Hörður Harðarson. Happasæll KE 94 við bryggju í Keflavík um árið en upphaflega hét hann Drangur og var flóabátur við Eyjafjörð. Báturinn var smíðaður í Noregi árið 1959 og mældist 191 brl. að stærð. Drangur var seldur til Keflavíkur árið 1982 og fékk nafnið Happasæll KE 94. Hann … Halda áfram að lesa Happasæll KE 94
Heiðrún ÍS 4
1506. Heiðrún ÍS 4. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skuttogarinn Heiðrún ÍS liggur hér í Reykjavíkurhöfn um árið og aftan við hana má sjá Bjarma frá Tálknafirði. Heiðrún, sem var 294 brl. að stærð, var smíðuð árið 1978 í Skipasmíðastöð Marselíusar Bernharðssonar h/f á Ísafirði fyrir Völustein h/f í Bolungarvík. Togarinn var búinn 1450 hestafla Alpha aðalvél. … Halda áfram að lesa Heiðrún ÍS 4









