IMO 9180877. Felix við Bökugarðinn. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Hollenska flutningaskipið Felix kom til Húsavíkur í morgun og lagðist við Bökugarðinn. Felix, sem siglir eins og áður segir undir hollensku flaggi, kom með hráefnisfarm til PCC á Bakka. Skipið var smíðað árið 1999 og er heimahöfn þess í Groningen. Lengd skipsins er 111 metrar og … Halda áfram að lesa Felix við Bökugarðinn
Month: september 2019
Vörður ÞH 44 kom til Grindavíkur í dag
2962. Vörður ÞH 44. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Hinn nýi Vörður ÞH 44 kom til Grindavíkur í dag en þaðan verður hann gerður út þó heimahöfnin sé Grenivík. Vörður er annað skipið sem kemur til landsins í röð sjö raðsmíðaskipa sem íslensk útgerðarfyrirtæki sömdu um smíði á við Vard skipasmíðastöðina. Vard rekur m.a. skipasmíðastöðvar í … Halda áfram að lesa Vörður ÞH 44 kom til Grindavíkur í dag
Bergey VE 144 í prufusiglingu
2964. Bergey VE 144. Ljósmynd Guðmundur Alfreðsson 2019. Eins og mörgum er kunnugt er ný Bergey VE 144 í smíðum hjá skipasmíðastöðinni Vard í Aukra í Noregi fyrir Berg-Hugin, dótturfélag Síldarvinnslunnar. Á heimasíðu Síldarvinnslunnar segir að gert sé ráð fyrir að skipið verði afhent kaupanda hinn 1. október nk. Þessa dagana hefur skipið verið í … Halda áfram að lesa Bergey VE 144 í prufusiglingu
Garðar kemur að bryggju í dag
260. Garðar ex Sveinbjörn Jakobsson SH 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Hvalaskoðunarbáturinn Garðar kemur hér að bryggju í haustblíðunni í dag. Upphaflega og lengst af Sveinbjörn Jakobsson SH 10 frá Ólafsvík. Smíðaður fyrir Útgerðarfélagið Dverg hf. í Esbjerg í Danmörku árið 1964. Norðursigling ehf. á Húsavík keypti bátinn haustið 2006 og gerði upp til siglinga … Halda áfram að lesa Garðar kemur að bryggju í dag
Sigurvin SH 119
1201. Sigurvin SH 119 ex Gæfa GK 119. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Eikarbáturinn Sigurvin SH 119 kemur hér að landi í Grindavík á vetrarvertíðinni árið 2005. Sigurvin SH 119 hét upphaflega Guðbjörg HU 21 eins og lesa má um hér en báturinn var smíðaður hjá Trésmiðju Austurlands á Fáskrúðsfirði. Sigurvin, sem síðar varð GK 119, … Halda áfram að lesa Sigurvin SH 119
Eros M-29-HØ
IMO 9617973. Eros M-29-HØ. Ljósmynd Elvar Jósefsson 2019. Hið glæsilega norska uppsjávarveiðiskipið Eros M-29-HØ kom til Keflavíkur á dögunum hverra erinda mér er ekki kunnungt. Elvar Jósefsson tók þessar myndir þega skipið lét úr höfn. Eros M-29-HØ er 77 metrar að lengd, 16 metra breitt og mælist 4,027 GT að stærð. Skipið var smíðað árið … Halda áfram að lesa Eros M-29-HØ
Ræða sameiningu Vísis og Þorbjarnarins
1416. Sighvatur GK 57 línuskip Vísis hf. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Eigendur sjávarútvegsfyrirtækjanna Vísis hf. og Þorbjarnar hf. hafa hafið viðræður um að leggja eignir félaganna inn í nýtt fyrirtæki og standa saman að rekstri nýs sjávarútvegsfyrirtækis í Grindavík. Í tilkynningu segir að Vísir og Þorbjörn séu rótgróin og öflug sjávarútvegsfyrirtæki, svipuð að stærð og … Halda áfram að lesa Ræða sameiningu Vísis og Þorbjarnarins
Aðalbjörg RE 5
1755. Aðalbjörg RE 5. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Dragnótabáturinn Aðalbjörg RE 5 kemur til hafnar í Grindavík á dögunum en hún var hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar árið 1987. Aðalbjörg RE 5 var lengd árið 1995 og er hún nú 21,99 metrar að lengd og mælist 59 brl./68 BT að stærð. Með því að smella á myndina … Halda áfram að lesa Aðalbjörg RE 5
Nýja brúin fór á Keili í dag
1420. Keilir SI 145 ex Keilir GK 145. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Nýja brúin á Keili SI 145 var hífð um borð í dag og komið fyrir á sínum stað en báturinn stendur uppi í Húsavíkurslipp. Áður hafði ljósavélina verið hífð í vélarúmið sem og geymasettin. Brúin hífð á Keili í morgun. Ljósmynd Þ.A 2019. … Halda áfram að lesa Nýja brúin fór á Keili í dag
Tasermiut GR 6-395 á siglingu
IMO 8705838. Tasermiut GR 6-395 ex Labrador Storm. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Grænlenski rækjutogarinn Tasermiut GR 6-395 er hér á siglingu í Meðallandsbugtinni síðdegis í dag. Togarinn var smíðaður í Langsten Slip & Båtbyggeri AS í Noregi árið 1988. Hann er 75,90 metrar að lengd, 13 metra breiður og mælist 2,590 GT að stærð. Samkvæmt … Halda áfram að lesa Tasermiut GR 6-395 á siglingu









