1244. Blómfríður SH 422 ex Gunnar Bjarnason SH 422. Ljósmynd Alfons Finnsson. Blómfríður SH 422 hét upphaflega Harpa GK 111 og var smíðuð árið 1972 fyrir Gullvík hf. í Grindavík. Smíðin fór fram hjá Skipasmíðastöð Þorgeirs & Ellerts hf. á Akranesi. Harpa, sem var 103 brl. að stærð, var seld til Grundarfjarðar árið 1975 þar … Halda áfram að lesa Blómfríður SH 422
Sjöfn ÁR 123
2004. Sjöfn ÁR 123 ex Sjöfn NS 123. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sjöfn ÁR 123 frá Eyrarbakka kemur hér að landi í Þorlákshöfn um árið en báturinn var smíðaður á Fáskrúðsfirði. Guðlaugur Einarsson skipasmiður smíðaði bátinn og smíðaár er 1989. Hann var 10 brl. að stærð smíðaður úr furu og eik. Báturinn hét í upphafi Egill … Halda áfram að lesa Sjöfn ÁR 123
Júlíus Havsteen
2262. Júlíus Havsteen ÞH ex Quaasiut II. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1996. Júlíus Havsteen ÞH 1 kemur hér til heimahafnar á Húsavík í lok janúar 1996 en togarinn var keyptur frá Grænlandi. Um komu hans má lesa hér en í dag heitir skipið Sóley Sigurjóns GK 200. Með því að smella á myndina er hægt að … Halda áfram að lesa Júlíus Havsteen
Saxhamar
1028. Saxhamar SH 50 ex Sjöfn EA 142. Ljósmynd Jón Páll Ásgeirsson 2024. Saxhamar SH 50 frá Rifi kom til Reykjavíkur í gær og tók Jón Páll Ásgeirsson þessa mynd af honum þá. Útnes ehf. á og gerir bátinn út sem hét upphaflega Hrafn Sveinbjarnarson GK 255 og var smíðaður 1967 fyrir Þorbjörn hf. í … Halda áfram að lesa Saxhamar
Østerfjord við bryggju í Reykjavík
LGDO. Østerfjord VL-101-AV. Ljósmynd Magnús Jónsson 2024. Norska skipið Østerfjord VL-101-AV lá við bryggju í Reykjavík í vikunni og tók Maggi Jóns þessa mynd. Þetta glæsilegt skip, sem smíðað var í Tyrklandi, er útbúið til línu- og dragnótaveiða. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on … Halda áfram að lesa Østerfjord við bryggju í Reykjavík
Sigrún Björk ÞH 100 kom til Húsavíkur í kvöld
7882. Sigrún Björk ÞH 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Nýr bátur kom til Húsavíkur í kvöld þegar Sigrún Björk ÞH 100 kom siglandi frá Akureyri en þangað var bátnum ekið í dag. Sigrún Björk er Sómi 990 sem Víkingbátar á Esjumelum á Kjalarnesi smíðuðu fyrir Doddu ehf. en að því fyrirtæki standa hjónin Haukur Eiðsson … Halda áfram að lesa Sigrún Björk ÞH 100 kom til Húsavíkur í kvöld
Haldið út á flóann
1453. Moby Dick - 1417. Bjössi Sör. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Hér halda hvalaskoðunarbátarnir Moby Dick og Bjössi Sör út á Skjálfandaflóa í morgun en öll fyrirtækin sem gera út til hvalaskoðunarferðafrá Húsavík hafa hafið vertíð sína þetta árið. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking … Halda áfram að lesa Haldið út á flóann
Fri Brevik kom í morgun
IMO 9190183. Fri Brevik ex Frisia Sky. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Flutningaskipið Fri Brevik kom til Húsavíkur í morgunsárið og lagðist að Bökugarði þar sem skipað er upp hráefnisfami fyrir kíslilver PCC á Bakka. Fri Brevik, sem siglir undir fána Kýpur með heimahöfn í Limassol, var smíðað í Hollandi árið 2001. Skipið, sem áður hefur … Halda áfram að lesa Fri Brevik kom í morgun
Valberg VE 10
127. Valberg VE 10 ex Kristbjörg II HF 75. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Valberg VE 10 hét upphaflega upphaflega Guðbjartur Kristján ÍS 280 frá Ísafirði. Báturinn var smíðaður fyrir Eir hf. í Flekkefjord í Noregi árið 1964 og mældist 194 brl. að stærð samkvæmt þeirra tíma mælingum. Árið 1967 kom nýr Guðbjartur Kristján ÍS 20 til … Halda áfram að lesa Valberg VE 10
Hrói ÞH 29
5444. Hrói ÞH 29. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Baldur Pálsson bátasmiður á Húsavík smíðaði Hróa ÞH 29 árið 1970. Bátinn smíðaði hann fyrir son sinn Guðmund sem átti hann í tuttugu og þrjú ár. Hrói, sem var rúmlega 5 brl. að stærð, fór til Þórshafnar frá Húsavík og fékk nafnið Latur ÞH 29. Báturinn var afskráður árið … Halda áfram að lesa Hrói ÞH 29









