Two Daughters SY 90. Ljósmynd Trefjar 2025. Trefjar í Hafnarfirði afhentu á dögunum nýjan Cleopatra bát til Norður-Uist eyju í Skotlandi en Uist eyjar er hluti af Suðureyjaklasanum nv. af Skotlandi. Eigandi og skipstjóri bátsins er Iain MacDonald en báturinn. sem er er af gerðinni Cleopatra 40, hefur fengið nafnið Two Daughters. Að sögn eigandans … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra 40 afhent til Suðureyja í Skotlandi
Sæstjarnan RE 850
2195. Sæstjarnan RE 850. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér verið að landa úr Sæstjörnunni RE 850 í Sandgerði um árið en báturinn var smíðaður á Stokkseyri árið 1992. Árið 2000 fékk Sæstjarnan, sem er tæplega 7 brl. að stærð, nafnið Ingólfur GK 148 og ári síðar var hann orðinn Helgi GK 404. Heimahöfnin var Sandgerði. Tíu … Halda áfram að lesa Sæstjarnan RE 850
Grundfirðingur SH 24
1202. Grundfirðingur SH 24 ex Hringur GK 18. Ljósmynd Vigfús Markússon. Grundfirðingur SH 24 hét upphaflega Þorlákur ÁR 5 og var smíðaður hjá Stálvík í Garðabæ 1972 fyrir Meitilinn h/f í Þorlákshöfn. Árið 1977 fékk hann nafnið Brimnes SH 257 og 1979 Rita NS 13, heimahöfn Vopnafjörður. Á vetrarvertíðinn 1982 er báturinn kominn til Hafnarfjarðar þar … Halda áfram að lesa Grundfirðingur SH 24
Drangey RE 34
1418. Drangey RE 34 ex Drangey RE. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Drangey RE 34 hét upphaflega Ægir Adólfsson ÞH 99 og átti heimhöfn á Raufarhöfn. Báturinn, sem var 8 brl. að stærð, var smíðaður af Baldri Halldórssyni á Hlíðarenda við Akureyri árið 1975. Ægir Adólfsson ÞH 99 var gerður út frá Raufarhöfn í tíu ár en … Halda áfram að lesa Drangey RE 34
Hólmsteinn GK 20
573. Hólmsteinn GK 20 ex Hafdís GK 20. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hólmsteinn GK 20 kemur hér að landi í Sandgerði um árið en upphaflega hét báturinn Hafdís GK 20. Báturinn var 43 brl. að stærð og smíðaður árið 1946 hjá Skipasmíðastöðinni Dröfn hf. fyrir Gísla Súrsson hf. í Hafnarfirði. Árið 1956 var báturinn seldur til … Halda áfram að lesa Hólmsteinn GK 20
Faldur ÞH 153
1267. Faldur ÞH 153 ex Votaberg ÞH 153. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1985. Hér siglir Faldur ÞH 153 frá Þórshöfn í Húsavíkurhöfn sumarið 1985 en hann var að fara upp í slipp þar sem hann var skveraður hátt og lágt. Faldur hét upphaflega Votaberg ÞH 153 og var smíðaður hjá Skipaviðgerðum hf. í Vestmannaeyjum en smíði … Halda áfram að lesa Faldur ÞH 153
Einn færeyskur
Færeyskur fiskibátur við bryggju á Húsavík. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Það kom fyrir hér á árum áður að færeyskir handfærabátar komu til Húsavíkur og hér er einn slíkur. Ekki hef ég hugmynd um hvaða nafn hann bar eða aðrar upplýsingar um hann en myndin var tekin c.a 1985. Með því að smella á myndina er hægt … Halda áfram að lesa Einn færeyskur
Sigurfari ÓF 30
980. Sigurfari ÓF 30 ex Friðrik Sigurðsson ÓF 30. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sigurfari ÓF 30 frá Ólafsfirði er hér á netaveiðum úti fyrir Norðurlandi um árið en upphaflega hét báturinn Sigurborg SI 275. Miði frá Hauki Sigtryggi: 0980....Sigurborg SI 275... TF-EU. Skipasmíðastöð: N. V. Sleephelling. Zaandam. Hollandi. 1965. 1970 = Brúttó: 249. U-þilfari: 176. Nettó: … Halda áfram að lesa Sigurfari ÓF 30
Arnþór EA 16
189. Arnþór EA 16 ex Valdimar Sveinsson VE 22. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Arnþór EA 16 frá Árskógssandi er hér á siglingu á miðunum um árið en þarna var hann á netaveiðum. Arnþór EA 16 hét upphaflega Skarðsvík SH 205 og var smíðaður fyrir Skarðsvík hf. á Hellissandi í Austur-Þýskalandi árið 1962. Miði frá Hauki Sigtryggi: … Halda áfram að lesa Arnþór EA 16
Páll Jónsson GK 7
2957. Páll Jónsson GK 7. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Páll Jónsson GK 7 landaði í Grindavík í gærmorgun tæpum 100 tonnum, uppistaða þorskur og ýsa sem fékkst á Austfjarðarmiðum. Skipið hélt út frá Grindavík að löndun lokinni áleiðis til Hafnarfjarðar þar sem það mun liggja meðan áhöfnin, ásamt öðru starfsfólki Síldarvinnslusamstæðunnar, fer til Póllands … Halda áfram að lesa Páll Jónsson GK 7









