Gestur í Jörfa

Gestur í Jörfa. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Ekki hef ég neinar upplýsingar um trilluhornið Gest í Jörfa sem hér kemur að landi á Húsavík í haust. Sören Gestsson keypti hana í sumar og nefndi eftir föður sínum, Gesti Halldórssyni, sem jafnan var kenndur við húsið Jörfa sem stendur á Stangarbakkanum (Mararbraut) á Húsavík. Gestur, sem … Halda áfram að lesa Gestur í Jörfa

Jóhannes Briem kom til heimahafnar í gær

3025. Jóhannes Briem. Ljósmynd Jón Páll Ásgeirsson 2023. Nýtt björgunarskip Landsbjargar, Jóhannes Briem, kom til heimahafnar í Reykjavík í gær. Báturinn var við hátíðlega athöfn afhentur Björg­un­ar­sveit­inni Ársæli í Reykja­vík. Jóhannes Briem er þriðja björgunarskipið sem smíðað er í skipa­smíðastöðinni Kewatec í Finn­landi fyrir Landsbjörgu. Fyrst í röðinni var Þór frá Vestmannaeyjum og síðan kom … Halda áfram að lesa Jóhannes Briem kom til heimahafnar í gær

Egill ÍS 77

1990. Egill ÍS 77 ex Þröstur RE 21. Ljósmynd Jón Páll Ásgeirsson. Egill ÍS 77 hét upphaflega Toppur GK 70 og smíðaður hjá Vélsmiðju Jónasar Þórðarsonar í Garðabæ, fyrir Sæmund Þórðarson á Vatnsleysuströnd. Árið 1993 kaupir Smári Einarsson bátinn og nefnir Þröst RE 21. Báturin var frekar stuttur í báða enda og mældist 9,9 brl. … Halda áfram að lesa Egill ÍS 77

Komið að lokum hjá Múlaberginu

1281. Múlaberg SI 22 ex Múlaberg ÓF 32. LJósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Eins og fram kom í fréttum í gær eru dagar Múlabergs SI 22 senn taldir eftir að bil­un kom upp í skip­inu og ekki talið svara kostnaði að gera við þennan hálfraraldar gamla Japanstogara. Togarinn hét upphaflega Ólafur Bekkur ÓF 2, hann var … Halda áfram að lesa Komið að lokum hjá Múlaberginu

Björgunarbáturinn Stella komin heim

7870. Stella. Ljósmynd Guðmundur St. Valdimarsson 2023. Nýr björgunarbátur, Stella, kom til Flateyrar fyrir skömmu en hann er samskonar bátur og Villi Páls sem kom til Húsavíkur um svipað leyti. Bátarnir eru frá bátasmiðjunni Rafnari og var skrokkar þeirra smíðaðir af tyrkneskum undirverktökum bátasmiðjunnar eftir teikningu Rafnars.  Um smíðina má lesa nánar hér en upphaflega stóð … Halda áfram að lesa Björgunarbáturinn Stella komin heim

Sólbakur EA 5

1212. Sólbakur EA 5 ex Bayard. Ljósmynd Jón Páll Ásgeirsson. Togarinn Sólbakur EA 5 á toginu en hann var fyrsti skuttogari Útgerðarfélags Akureyringa h/f, kom til heimahafnar á Akureyri 8. febrúar 1972. Sólbakur var smíðaður í Gdynia í Póllandi fyrir franska útgerð og afhentur í árslok árið 1967. Hjá Frökkunum hét hann Bayard og heimahöfn … Halda áfram að lesa Sólbakur EA 5