Spiekeroog kom með Margréti GK 9 til Helguvíkur í dag

IMO 9506148. Spiekeroog - 3020. Margrét GK 9. Ljósmynd KEÓ Flutningaskipið Spiekeroog kom til Helguvíkur í dag og um borð var fiskibáturinn Margrét GK 9. Margrét GK 9 var smíðuð í Tyrklandi fyrir Skipasmíðastö Njarðvíkur hf. sem mun klára bátinn en kaupandi er Stakkavík ehf. í Grindavík. Báturinn er hannaður af Ráðgarði skiparáðgjöf í samstarfi … Halda áfram að lesa Spiekeroog kom með Margréti GK 9 til Helguvíkur í dag

Arney kemur að

1014. Arney KE 50 ex Ársæll Sigurðsson GK 320. Ljósmynd úr einkasafni. Hér kemur Arney KE 50 að bryggju um árið, myndin er flott þó myndgæðin mættu vera betri. Hygg að þetta sé í Sandgerði en Arney hét upphaflega Ársæll Sigurðsson GK 320, smíðaður Brattvaag í Noregi 1966 fyrir Ársæl s/f í Hafnarfirði.  Báturinn var … Halda áfram að lesa Arney kemur að

Helga Guðmundsdóttir BA 77

1076. Helga Guðmundsdóttir BA 77. Ljósmynd Jón Páll Ásgeirsson. Helga Guðmundsdóttir BA 77 var smíðuð í skipasmíðastöð Þorgeirs & Ellerts á Akranesi. Hún var smíðuð fyrir Vesturröst hf. á Patreksfirði og kom ný til heimahafnar 9. mars árið 1969. Helga Guðmundsdóttir BA 77 var yfirbyggð í Njarðvík árið 1977. Árið 1982 er skipið selt til … Halda áfram að lesa Helga Guðmundsdóttir BA 77

Haukur

1292. Haukur ex Haukur ÍS 195. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2001. Hér hvalaskoðunarbáturinn Haukur að leggja upp í hvalaskoðun á Skjálfanda undir stjórn Bjössa Sör. Myndin var tekin í ágústmánuði árið 2001 en um veturinn fór báturinn í gegnum breytingar og sumarið 2002 hóf hann siglingar sem tveggja mastra skonnorta. Haukur er 19 brl. að stærð, … Halda áfram að lesa Haukur

Sólrún, Særún og Rún

2706. Sólrún EA 151, 2793. Særún EA 251, 2711. Rún EA 351. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Hér gefur að líta bátaflota Sólrúnar ehf. við bryggju á Árskógssandi í lok ágústmánaðar í ár en þetta eru Sólrún, Særún og Rún. Sólrún EA 151 hét upphaflega Sæunn Sæmundsdóttir ÁR 60, Særún EA 251 hét upphaflega Nanna Ósk … Halda áfram að lesa Sólrún, Særún og Rún

Ögmundur ÁR 3

261. Ögmundur ÁR 3 ex Jónas Guðmundsson SH 18. Ljósmynd Vigfús Markússon. Ögmundur ÁR 3 var smíðaður í Stálvík hf. árið 1964 og hét upphaflega Sæhrímnir KE 57. Báturinn, sem var 176 brl. að stærð, var smíðaður fyrir Hraðfrystihús Jökuls hf. Keflavík en árið 1972 er hann kominn vestur í Ólafsvík. Við það varð Sæhrímnir SH … Halda áfram að lesa Ögmundur ÁR 3

Bakkavík ÁR 100

1158. Bakkavík ÁR 100 ex Bjarnarvík ÁR 13. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1982. Bakkvík ÁR 100 kemur hér að landi í Þorlákshöfn vorið 1982 en báturinn var með heimahöfn á Eyrarbakka. Upphaflega hét báturinn Helgi Bjarnason NK 6, 15 brl. að stærð, smíðaður árið 1971 hjá Dráttarbrautinni hf. í Neskaupstað. Árið 1974 fékk Helgi Bjarnason skráninguna … Halda áfram að lesa Bakkavík ÁR 100

Haftindur HF 123

993. Haftindur HF 123 ex Halldóra HF 61. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Haftindur HF 123 hét upphaflega Þróttur SH 4 og smíðaður í Skipavík hf. árið 1965 fyrir Hólma h/f í Stykkishólmi. Báturinn hefur einnig borið nöfnin Morgunstjarnan, Páll Rósinkransson, Björn í Vík, Ása og Halldóra HF 61 áður en hann fékk nafnið Haftindur HF 123. … Halda áfram að lesa Haftindur HF 123