2008. Vörðurfell GK 205 ex Stefnir ST 47. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Vörðurfell GK 205 var smíðað hjá Trefjaplasti ehf. á Blönduósi árið 1989 og hét upphaflega Stefnir ST 47 með heimahöfn á Drangsnesi. Árið 2001 er báturinn, sem er tæplega 10 brl. að stærð, skráður í Grindavík semVörðufell GK 205 og var gerður þaðan út … Halda áfram að lesa Vörðufell GK 205
Húsavíkurhöfn á fyrri hluta níunda áratugsins
Við Húsavíkurhöfn. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Hér kemur mynd Hreiðars Olgeirssonar frá því á níunda áratug síðustu aldar, sennilega 1984 frekar en 5. Þarna má sjá við bryggju Dagfara, Geira Péturs, Kristbjörgu, Sigþór, Skálaberg, Björgu Jónsdóttur og Sæljón EA 55 auk húsvískra smábáta. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri … Halda áfram að lesa Húsavíkurhöfn á fyrri hluta níunda áratugsins
Við Húsavíkurhöfn í kvöld
Við Húsavíkurhöfn í kvöld. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Mynd sú er nú birtist var tekin við Húsavíkurhöfn í kvöld og er hvalaskoðunarbáturinn Garðar í forgrunni. Lognið var algjört og ljósin við höfnina spegluðust fallega í sjónum. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images … Halda áfram að lesa Við Húsavíkurhöfn í kvöld
Baldur
3039. Baldur ex Røst. Ljósmynd Magnús Jónsson 2023. Breiðafjarðarferjan Baldur fór niður úr dokkinni í Hafnarfirði í dag og tók Maggi Jóns þessa mynd af henni við bryggju. Ferjan var smíðuð árið 1991, tekur 250 farþega og rúmar fimm stóra flutningabíla. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. … Halda áfram að lesa Baldur
Nýja hafrannsóknaskipið Þórunn Þórðardóttir sjósett 15. desember
Nýja hafrannsóknarskipið Þórunn Þórðardóttir. Lj. Stjórnarráðið. Nýtt hafrannsóknaskip verður sjósett í skipasmíðastöðinni Astilleros Armón í Vigo á Spáni 15. desember nk. Við sjósetningu mun skipið formlega hljóta nafnið Þórunn Þórðardóttir og fær það einkennisstafina HF 300. Skipið mun draga nafn sitt af Þórunni Þórðardóttur sem var fyrsta íslenska konan með sérfræðimenntun í hafrannsóknum og var … Halda áfram að lesa Nýja hafrannsóknaskipið Þórunn Þórðardóttir sjósett 15. desember
Nýr Hákon sjósettur í Gdansk
3059. Hákon ÞH 250. Ljósmynd Fésbókarsíða Gjögurs 2023. Hákon ÞH 250, nýtt uppsjávarskip Gjögurs hf., var sjósett í dag hjá Karstensens Skibsværft A/S í Gdansk Póllandi. Áætluð afhending Hákons ÞH 250, sem er 75,4 metrar að lengd og 16,5 metrar á breidd, er í apríl 2025. Með því að smella á myndina er hægt að skoða … Halda áfram að lesa Nýr Hákon sjósettur í Gdansk
Haförn ÁR 115
100. Haförn ÁR 115 ex Jón Jónsson SH 187. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Haförn ÁR 115, sem hér sést koma til hafnar í Vestmannaeyjum, hét upphaflega Hoffell SU 80, smíðað í Noregi árið 1959. Báturinn var í eigu Marvers hf. á Stokkseyri árin 1988-1995 og var hann yfirbyggður á þeim árum en hér má sjá hann hálfyfirbyggðan. … Halda áfram að lesa Haförn ÁR 115
Bergvík VE 505
177. Bergvík VE 505 ex Fönix KE 177. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Bergvík VE 505 á útleið frá Vestmannaeyjum um árið en báturinn var keyptur þangað vorið 1989. Í frétt Morgunblasins 5. maí það ár sagði frá nýjum skipum sem bæst höfðu við flotann það vorið og þar segir m.a: Bergvík VE hét áður Fönix og var gerður út … Halda áfram að lesa Bergvík VE 505
Hugo Trygvason háfar síld
LMND. Hugo Trygvason F-100-M ex D/S Sokbra. Ljósmynd Óskar Þórhallsson. Hér kemur skemmtileg mynd sem Óskar heitinn Þórhallsson, kenndur við Arney, tók á síldarárunum. Hún sýnir norska síldveiðiskipið Hugo Trygvason F-100-M háfa síld úr nótinni. Hér má lesa upplýsingar um skipið sem var smíðað í Smiths Dock Co., South Bank í Middlesbrough, Englandi. Með því … Halda áfram að lesa Hugo Trygvason háfar síld
Arney KE 50 í Keflavíkurhöfn
1094. Arney KE 50 ex Arney SH 2. Ljósmynd úr einkasafni. Hér liggur Arney KE 50, sú fyrsta af þrem, í Keflavíkurhöfn en þaðan var hún gerð út á árunum 1973-1977. Báturinn var smíðaður í Skipasmíðastöðinni Dröfn hf. Hafnarfirði og lauk smíði hans árið 1969 en þá voru sjö ár síðan smíðin hófst. Báturinn, sem … Halda áfram að lesa Arney KE 50 í Keflavíkurhöfn









