Wilson Hirthsals

IMO 9240251. Wilson Hirthsals ex Tejo Alges. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Flutningaskipið Wilson Hirthsals kom til Húsavíkur í morgun en skipið er með hráefnisfarm fyrir kísilver PCC á Bakka. Skipið siglir undir fána Barbados og er heimahöfn þess í Bridgetown. Winston Hirthsals var smíðað í Búlgaríu árið 2001 og bar áður nöfnin Parma og Tejo … Halda áfram að lesa Wilson Hirthsals →

Ísfélagið kaupir Pathway

 IMO 9763095. Pathway PD 165. Ljósmynd Karstensens Skibsvært. Frá því var greint í vikunni að Ísfélagið hefði fest kaup á skoska uppsjávarskipinu Pathway. Seljandi er Lunar Fishing Company Limited en Pathway var smíðað hjá Karstensen skipasmíðastöðinni í Skagen árið 2017. Skipið er 78 metra langt og 15,5 metra breitt og eru kaupin liður í endurnýjun … Halda áfram að lesa Ísfélagið kaupir Pathway →

Bátar við bryggju í Grindavík

Bátar við bryggju í Grindavík. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þessi mynd var tekin í Grindavík um árið og sýnir þrjá báta við bryggju þar í bæ. Fremstur á myndinni er Fengsæll GK 262 sem áður hét m.a Ingólfur GK 125 og sjá má mynd af hér. Hann liggur utan á Hrímni SH 35 frá Stykkishólmi sem … Halda áfram að lesa Bátar við bryggju í Grindavík →

Bátar við bryggju á Akureyri

Bátar við bryggju á Akureyri. jósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér gefur að líta mynd sem tekin var á Akureyri um miðjan tíunda áratug síðustu aldar. Þarna eru bátar úr Hrísey í aðalhlutverki. Sólfellið og gamla Eyborg hérna nær með Svan SH 335 utan á sér og fjær er nýja Eyborgin sem kom í flotann í aprílmánuði … Halda áfram að lesa Bátar við bryggju á Akureyri →