
Hér gefur að líta frystitogarann Sléttbak EA 304 á siglingu á Eyjafirði um árið en ÚA keypti hann til landsins í marsmánuði árið 2002.
Togarinn, sem síðar varð EA 4, hét áður Sevryba 2 og var smíðaður í Orskov Shipyard í Danmörku árið 1998. Ekki varð útgerð hans löng hér við Ísland því Sléttbakur var seldur til Kanada árið 2005.
Sléttbakur var 58 metra langur og 13,5 metra breiður. Hann átti sér eitt systurskip í íslenska flotanum sem var Þór HF 4.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution