Sturlaugur H orðinn Mars RE 13

1585. Sturlaugur H Böðvarsson AK 10 ex Sigurfari II SH 105. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Sturlaugur H Böðvarsson AK 105, áður AK 10, hefur fengið nafnið Mars RE 13 samkvæmt vef Fiskistofu. Morgunblaðið greinir frá því í dag að Útgerðarfélag Reykjavíkur hafi keypt togarann af HB Granda hf. í byrjun febrúar. Sturlaugur H fór sína … Halda áfram að lesa Sturlaugur H orðinn Mars RE 13

Vigri RE 71 að veiðum

2184. Vigri RE 71. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Hér birtist frystistogarinn Vigri RE 71 en myndirnar sýna hann að veiðum á Heimsmeistarahrygg í Skerjadýpi sl. fimmtudag. Vigri RE 71 var smíðaður fyrir Ögurvík hf. í Flekkefjord Slipp & Maskinfabrikk A/S í Flekkefjord í Noregi árið 1992. Togarinn, sem er 1.217 brl. að stærð, er 66.96 … Halda áfram að lesa Vigri RE 71 að veiðum

Sirrý ÍS 36 að veiðum

2919. Sirrý ÍS 36 ex Stamsund N-11-VV. Ljósmynd Þór Jónsson 2019. Skuttogarinn Sirrý ÍS 36 frá Bolungarvík er hér að veiðum sunnan við land en myndina tók Þór Jónsson skipverji á Ljósafelli SU 70. Sirrý ÍS 36, sem áður hét Stamsund N-11-VV, var keypt frá Noregi og kom inn í flotann í janúar árið 2016. … Halda áfram að lesa Sirrý ÍS 36 að veiðum

Kaldbakur og Björgúlfur að veiðum

2891. Kaldbakur EA 1 - 2892. Björgúlfur EA 312. Ljósmynd Guðmundur Rafn Guðmundsson 2019. Á þessari mynd Gunda eru skuttogararnir Kaldbakur EA 1 og Björgúlfur EA 312 að veiðum. Myndin var tekin í fyrrdag um borð í þriðja Samherjatogaranum af þessari gerð sem er Björg EA 7. Með því að smella á myndina er hægt … Halda áfram að lesa Kaldbakur og Björgúlfur að veiðum

Björgúlfur EA 312 á veiðislóðinni

2892. Björgúlfur EA 312. Ljósmynd Guðmundur Rafn Guðmundsson 2019. Gundi tók þessar myndir af Samherjatogaranum Björgúlfi EA 312 á veiðislóðinni sl. mánudag en hann var um borð í systurskipinu Björgu EA 7. Þessi Björgúlfur EA 312 er þriðja skipið sem ber þetta nafn og EA 312 en sá fyrsti kom 1960 og var einn a-þýsku … Halda áfram að lesa Björgúlfur EA 312 á veiðislóðinni

Breki VE 61 fiskaði 1200 tonn í mars

2861. Breki VE 61. Ljósmynd Jói Myndó 2019. Togarinn Breki VE fiskaði 1.200 tonn í nýliðnum marsmánuði og á heimasíðu VSV segir að þetta sé metafli skipsins í einum mánuði og umfram björtustu vonir og væntingar. 2861. Breki VE 61. Ljósmynd Jói Myndó 2019. „Skemmst er frá að segja að gangurinn á Breka er alveg … Halda áfram að lesa Breki VE 61 fiskaði 1200 tonn í mars

Drangey SK 2 að veiðum

2893. Drangey SK 2 . Ljósmynd Guðmundur Rafn Guðmundsson 2019. Skuttogarinn Drangey SK 2 hefur fiskað vel að undanförnu og á þessum myndum Gunda er hún að veiðum fyrir Suðulandi fyrir nýliðna helgi. Drangey hefur landað að undanförnu í Grundarfirði þaðan sem aflanum er ekið til vinnslu hjá FISK Seafood á Sauðárkróki. 2893. Drangey SK … Halda áfram að lesa Drangey SK 2 að veiðum

Hitti fyrir gamlan kunningja norðarlega í Smugunni

ESKS. Steffano EK 16-01 ex Steffen C GR 6-22. Ljósmynd Eiríkur Sigurðsson 2019. Alltaf gaman að fá gamla "kunningja" í heimsókn segir Eiríkur Sigurðsson skipstjóri á rækjutogaranum Reval Viking við mynd sína í Fésbókarfærslu hans í dag. Myndin er af rækjutogaranum Steffano sem er í eigu sama fyrirtækis og Reval Viking, Reyktal AS en þeir … Halda áfram að lesa Hitti fyrir gamlan kunningja norðarlega í Smugunni