Hælsvík GK 350

2361. Hælsvík GK 350 ex Bergur Pálsson EA 761. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hælsvík GK 350 hét upphaflega Bergur Pálsson EA 761 og var smíðaður hjá Trefjum í Hafnarfirði árið 1999. Heimahöfn Dalvík. Báturinn, sem er af gerðinni Cleopatra 28, var seldur til Grindavíkur árið 2001 þar sem hann fékk nafnið Hælsvík GK 350. Árið 2006 … Halda áfram að lesa Hælsvík GK 350 →

Ný Cleopatra 33 til Ólafsvíkur

3046. Glaður SH 226. Ljósmynd Trefjar 2023. Sverrisútgerðin ehf. í Ólafsvík fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 33 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Gísli Marteinsson verður skipstjóri á bátnum sem hefur þegar hafið veiðar. Nýi báturinn heitir Glaður og er hann 9.9 metrar að lengd og mælist 11 brúttótonn. Báturinn leysir af hólmi … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra 33 til Ólafsvíkur →

Kristján ÞH 5

5430. Kristján ÞH 5. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Kristján ÞH 5 var smíðaður af Jóhanni Sigvaldasyni bátasmið á Húsavík árið 1966. Bátinn, sem var tvær brúttórúmlestir að stærð, smíðaði hann fyrir Helga Kristjánsson í Sæbergi sem átti Kristján til ársins 1993. Þá eignaðist Höfði hf. bátinn og síðar Kristján Ásgeirsson. Á seinni stigum eignaðist Aðalsteinn Júlíusson bátinn … Halda áfram að lesa Kristján ÞH 5 →

Sæúlfur ÞH 188

5644. Sæúlfur ÞH 188 ex Blöndi ÞH 25. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sæúlfur ÞH 188 kemur hér að landi á Húsavík um árið en hann var gerður út af Karli Bjarkasyni. Sæúlfur var smíðaður árið 1962 í Bátalóni í Hafnarfirði og var tæpar þrjár brúttórúmlestir að stærð. Upphaflega hét hann Mardís EA 164 með heimahöfn í … Halda áfram að lesa Sæúlfur ÞH 188 →

Litlanes ÞH 52

2018. Litlanes ÞH 52. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Á þessari mynd Hreiðars Ogeirssonar gefur að líta Litlanes ÞH 52 sem smíðað var fyrir Óla Þorsteinsson á Þórshöfn árið 1989 í Vélsmiðju Seyðisfjarðar. Litlanes ÞH 52 var selt til Fáskrúðsfjarðar árið 1990 þar sem það fékk nafnið Dagbjört SU 50. Báturinn heitir í dag Garpur RE 148 … Halda áfram að lesa Litlanes ÞH 52 →