Ólafur HF 51

2781. Ólafur HF 51. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009. Í júnímánuði árið 2009 kom Ólafur HF 51 til Húsavíkur en Karel Karelsson skipstjóri var á hringferð til að kynna þennan nýja bát fyrir útgerðar- og sjómönnum. Báturinn er af gerðinni Cleopatra 31 og var smíðaður hjá Trefjum í Hafnarfirði. Hann hefur borið nafnið Dufan BA 122 … Halda áfram að lesa Ólafur HF 51 →

Máni ÞH 98

1920. Máni ÞH 98 ex Máni EA 36. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2016. Máni ÞH 98 kemur hér til hafnar á Húsavík úr línuróðri haustið 2013 en hann var smíðaður í Vélsmiðju Seyðisfjarðar árið 1988. Máni hét upphaflega Þjóðólfur ÍS 86 frá Bolungarvík en þaðan var hann seldur til Keflavíkur árið 2004. Í Keflavík fékk báturinn … Halda áfram að lesa Máni ÞH 98 →

Háey I

2995. Háey I ÞH 295. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Línubáturinn Háey I ÞH 295 tekur hér olíu í haustsólinni á Húsavík en myndin var tekin í septembermánuði þessa árs. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them in higher resolution

Hólmsteinn GK 20

7789. Hólmsteinn GK 20. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Strandveiðibáturinn Hólmsteinn GK 20 kemur hér að landi í Sandgerði þann 2. maí sl. á fyrsta degi strandveiðatímabilsins 2024. Hólmsteinn, sem var smíðaður árið 1995, er gerður út af Austurlyngi ehf. með heimahöfn í Garði. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í … Halda áfram að lesa Hólmsteinn GK 20 →