Hekla

IMO 7383114. Hekla ex Vela. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Flutningaskipið Hekla kemur hér til Húsavíkur um árið en Ríkisskip gerðir það út til strandflutninga við Ísland. Skipið var í eigu Ríkissjóðs Íslands og keypt hingað til lands árið 1984, þá tíu ára gamalt. Skipið hafði þá verið hér í leigu frá árinu 1981 og siglt á … Halda áfram að lesa Hekla →

Keilir á Hornafirði

2946. Keilir. Ljósmynd Sigurður Davíðsson 2020. Sigurður Davíðsson tók þessa mynd í vikunni þegar olíuskipið Keilir kom til Hafnar í Hornafirði. Keilir er í eigu Olíudreifingar og var míðaður hjá Akdeniz skipasmíðastöðinni í Tyrklandi. Hann kom til landsins í fyrra, nánar tiltekið í febrúarmánuði. Keilir, sem leysti Laugarnes af hólmi í olíuflutningunum, siglir undir íslensku … Halda áfram að lesa Keilir á Hornafirði →

Selfoss og Sleipnir

IMO 9433456. Selfoss ex Shopia. 2250. Sleipnir. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Selfoss, skip Eimskipafélags Íslands hf. lét úr höfn á Húsavík um kaffileytið í dag og naut við það aðstoðar hafnsögubátsins Sleipnis. Selfoss er 700 gámaeininga skip, 130 metra langt, 21 metra breitt og 7,464 brúttótonn að stærð. Eimskip keypti skipið, sem smíðað var 2008, árið 2017 … Halda áfram að lesa Selfoss og Sleipnir →

Wilson Thames við Bökugarðinn

IMO 9177894. Wilson Thames ex Hestia. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Flutningaskipið Wilson Thames kom til Húsavíkur í gærkveldi og lagðist að Bökugarðinum þar sem verið er að skipa farminum upp. Wilson Thames, sem kom hingað frá Sandnes í Noregi, er 90 metra langt, 12 metra breitt og mælist 1,846 brúttótonn að stærð. Skipið var smíðað … Halda áfram að lesa Wilson Thames við Bökugarðinn →

Danavik kom með sement til Helguvíkur

IMO 8221363. Danavik ex Klc Banshee. Ljósmynd KEÓ 2020. Flutningaskipið Danavik kom fulllestað sementi til Helguvíkur í gærkveldi og tók Karl Einar Óskarsson hafnarvörður þessa mynd þá. Akkúrat mánuður er síðan myndir af skipinu birtust á síðunni og þá var skrifað: Danavik, sem siglir undir fána Marshalleyja, var smíða árið 1983. Það er 104 metrar … Halda áfram að lesa Danavik kom með sement til Helguvíkur →

Nýr Dettifoss kom til landsins í dag

IMO 9822853. Dettifoss. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2020. Dettifoss, nýtt skip Eimskipafélags Íslands, kom til hafnar í Reykjavík í dag og tók Jón Steinar meðfylgjandi myndir við það tækifæri. Dettifoss, sem er stærsta gámaskip í sögu íslenska kaupskipaflotans, var smíðað í Kína og tók heimsiglingin 68 daga með viðkomu í Singapúr, Sri Lanka, Suez, Rússlandi … Halda áfram að lesa Nýr Dettifoss kom til landsins í dag →

Sementsflutningaskipið Danavik

IMO 8221363. Danavik ex Klc Banshee. Ljósmynd KEÓ 2020. Sementsflutningaskipið Danavik kom til Helguvíkur um helgina og tók Karl Einar Óskarsson hafnarvörður þessar myndir. Danavik, sem siglir undir fána Marshalleyja, var smíða árið 1983. Það er 104 metrar að lengd og 16 metra breitt. Mælist 3,625 brúttótonn að stærð og er með heimahöfn í Majuro. … Halda áfram að lesa Sementsflutningaskipið Danavik →

X Press Vesuvio á Vigoflóa

IMO: 9328651. X Press Vesuvio. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Þessi mynd var tekin fyrir tæpu ári síðan og sýnir gámaflutningaskipið X Press Vesuvio sigla út frá hafnarborginni Vigo á norður Spáni. Skipið siglir undir fána Möltu með heimahöfn í Valletta.  Það var smíðað árið 2005 og er 133,6 metrar að lengd, breidd þess er 19,6 metrar … Halda áfram að lesa X Press Vesuvio á Vigoflóa →

Wilson Newcastle

IMO 9431006. Wilson Newcastle. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Flutningaskipið Wilson Nanjing kom til Húsavíkur nú undir kvöld og lagðist að Bökugarðinum þar sem hráefnisfarmi fyrir PCC á Bakka verður skipað upp. Skipið, sem kom einnig til Húsavíkur í september 2018, er skráð á Möltu með heimahöfn í Valletta. Það var smíðað árið 2011 og er … Halda áfram að lesa Wilson Newcastle →

Skógafoss kom til Húsavíkur

IMO 9375252.. Skógafoss ex Ice Bird. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Flutningaskipið Skógafoss kom til Húsavíkur í gær og voru þessar myndir teknar þegar hann sigldi inn Skjálfandann og lagðist að Bökugarðinum. Skógafoss var smíðaður árið 2007 og hét Ice Bird til ársins 2011. Hann er 130 metrar að lengd og 20,6 metra breiður. Mælist 7.545 … Halda áfram að lesa Skógafoss kom til Húsavíkur →