Selfoss og Sleipnir

IMO 9433456. Selfoss ex Shopia. 2250. Sleipnir. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Selfoss, skip Eimskipafélags Íslands hf. lét úr höfn á Húsavík um kaffileytið í dag og naut við það aðstoðar hafnsögubátsins Sleipnis. Selfoss er 700 gámaeininga skip, 130 metra langt, 21 metra breitt og 7,464 brúttótonn að stærð. Eimskip keypti skipið, sem smíðað var 2008, árið 2017 … Halda áfram að lesa Selfoss og Sleipnir

Wilson Thames við Bökugarðinn

IMO 9177894. Wilson Thames ex Hestia. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Flutningaskipið Wilson Thames kom til Húsavíkur í gærkveldi og lagðist að Bökugarðinum þar sem verið er að skipa farminum upp. Wilson Thames, sem kom hingað frá Sandnes í Noregi, er 90 metra langt, 12 metra breitt og mælist 1,846 brúttótonn að stærð. Skipið var smíðað … Halda áfram að lesa Wilson Thames við Bökugarðinn

Danavik kom með sement til Helguvíkur

IMO 8221363. Danavik ex Klc Banshee. Ljósmynd KEÓ 2020. Flutningaskipið Danavik kom fulllestað sementi til Helguvíkur í gærkveldi og tók Karl Einar Óskarsson hafnarvörður þessa mynd þá. Akkúrat mánuður er síðan myndir af skipinu birtust á síðunni og þá var skrifað: Danavik, sem siglir undir fána Marshalleyja, var smíða árið 1983. Það er 104 metrar … Halda áfram að lesa Danavik kom með sement til Helguvíkur

Nýr Dettifoss kom til landsins í dag

IMO 9822853. Dettifoss. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2020. Dettifoss, nýtt skip Eimskipafélags Íslands, kom til hafnar í Reykjavík í dag og tók Jón Steinar meðfylgjandi myndir við það tækifæri. Dettifoss, sem er stærsta gámaskip í sögu íslenska kaupskipaflotans, var smíðað í Kína og tók heimsiglingin 68 daga með viðkomu í Singapúr, Sri Lanka, Suez, Rússlandi … Halda áfram að lesa Nýr Dettifoss kom til landsins í dag

Sementsflutningaskipið Danavik

IMO 8221363. Danavik ex Klc Banshee. Ljósmynd KEÓ 2020. Sementsflutningaskipið Danavik kom til Helguvíkur um helgina og tók Karl Einar Óskarsson hafnarvörður þessar myndir. Danavik, sem siglir undir fána Marshalleyja, var smíða árið 1983. Það er 104 metrar að lengd og 16 metra breitt. Mælist 3,625 brúttótonn að stærð og er með heimahöfn í Majuro. … Halda áfram að lesa Sementsflutningaskipið Danavik

X Press Vesuvio á Vigoflóa

IMO: 9328651. X Press Vesuvio. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Þessi mynd var tekin fyrir tæpu ári síðan og sýnir gámaflutningaskipið X Press Vesuvio sigla út frá hafnarborginni Vigo á norður Spáni. Skipið siglir undir fána Möltu með heimahöfn í Valletta.  Það var smíðað árið 2005 og er 133,6 metrar að lengd, breidd þess er 19,6 metrar … Halda áfram að lesa X Press Vesuvio á Vigoflóa

Wilson Newcastle

IMO 9431006. Wilson Newcastle. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Flutningaskipið Wilson Nanjing kom til Húsavíkur nú undir kvöld og lagðist að Bökugarðinum þar sem hráefnisfarmi fyrir PCC á Bakka verður skipað upp. Skipið, sem kom einnig til Húsavíkur í september 2018, er skráð á Möltu með heimahöfn í Valletta. Það var smíðað árið 2011 og er … Halda áfram að lesa Wilson Newcastle

Skógafoss kom til Húsavíkur

IMO 9375252.. Skógafoss ex Ice Bird. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Flutningaskipið Skógafoss kom til Húsavíkur í gær og voru þessar myndir teknar þegar hann sigldi inn Skjálfandann og lagðist að Bökugarðinum. Skógafoss var smíðaður árið 2007 og hét Ice Bird til ársins 2011. Hann er 130 metrar að lengd og 20,6 metra breiður. Mælist 7.545 … Halda áfram að lesa Skógafoss kom til Húsavíkur

Samskip Hvitbjørn

IMO 9642564. Samskip Kvitbjørn. Ljósmynd Eiríkur Sigurðsson 2020. Þessa mynd af Samskip Hvitbjørn tók Eiríkur Sigurðsson á dögunum en skipið, sem notar gas sem eldsneyti, er af svokallaðri Ro Ro gerð flutningaskipa. Skipið var smíðað árið 2015 og siglir undir færeysku flaggi með heimahöfn í Þórshöfn. Skipið er 119,92 metrar að lengd, breidd þess er … Halda áfram að lesa Samskip Hvitbjørn

Lagarfoss kom til Húsavíkur í gær

IMO 9641314. Lagarfoss á Skjálfandaflóa. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Lagarfoss, skip Eimskipafélgsins, kom til Húsavíkur í gærkveldi og var birtan orðin heldur lítil til að hægt væri að ná góðum myndum. Á vef Faxaflóahafna þann 18. ágúst 2014 mátti lesa þetta: Sunnudaginn 17. ágúst kom til hafnar í Reykjavík nýtt skip Eimskipafélags Íslands og ber … Halda áfram að lesa Lagarfoss kom til Húsavíkur í gær