IMO 8802894. Island Sky ex Renai II. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Skemmtiferðaskipið Island Sky kom til Húsavíkur í dag og lét úr höfn aftur í kvöld og voru þessar myndir teknar þá. Skipið var smíðað árið 1992 og er 4,200 GT að stærð. Það er 90,6 metrar að lengd og breidd þess er 15, 3 … Halda áfram að lesa Island Sky á Skjálfanda
Flokkur: Farþegaskip
National Geographic Resolution
IMO: 9880685. National Geographic Resolution. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Skemmtiferðaskipið National Geographic Resolution kom til Húsavíkur um miðjan daginn og hafði nokkurra klukkustunda viðdvöl við Bökugarðinn. Skipið var afhent skipafélaginu Lindblad Expeditions sl. haust en það var smíðað í Ulstein Verft í Ulsteinvik, Noregi. Systurskipið NG Endurance kom til Húsavíkur sl. sumar og var þá í … Halda áfram að lesa National Geographic Resolution
Hanseatic spirit á Húsavík
IMO: 9857640. Hanseatic spirit við Bökugarðinn í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skemmtiferðaskipið Hanseatic spirit kom til Húsavíkur í morgun og lagðist að Bökugarðinum. Skipið er eitt þriggja systurskipa smíðuð hjá VARD Group AS í Noregi. Hin eru Hanseatic nature og Hanseatic inspiration sem kom hingað á dögunum. Skipin taka allt að 230 farþega. Hanseatic spirit var … Halda áfram að lesa Hanseatic spirit á Húsavík
Silver Moon á Húsavík
IMO 9838618. Silver Moon. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Slemmtiferðaskipið Silver Moon kom til Húsavíkur snemma í morgun og lagðist að Bökugarðinum. Skipið, sem var smíðað árið 2020, er 212,18 metrar að lengd, 27 metra breitt og mælist 40.844 GT að stærð. Það siglir undir fána Bahama og tekur 596 farþega. IMO 9838618. Silver Moon. Ljósmyndir … Halda áfram að lesa Silver Moon á Húsavík
Spitsbergen kom í morgun
IMO 9434060. Spitsbergen. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Farþegaskipið Spitsbergen kom ti Húsavíkur í morgun en það er gert út af Hurtigruten í Noregi. Spitsbergen var smíðað árið 2009 hjá skipasmíðastöðinni Estaleiro Navais de Viana do Castelo í Viana do Castelo í Portúgal. Skipið var allt endurnýjað árið 2016 en það tekur 335 farþega. Spitzbergen er … Halda áfram að lesa Spitsbergen kom í morgun
Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins kom til Húsavíkur í morgun
IMO 9138329. Hamburg ásamt hafnsögubátnum Sleipni síðdegis í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins kom til Húsavíkur í morgun og þar var á ferðinni Hamburg sem hefur heimahöfn í Nassau á Bahamaeyjum. Hamburg, sem áður hér C.Columbus, var smíðað árið 1997. Það er 144 metra langt og mælist 15,067 GT að stærð. Það tekur … Halda áfram að lesa Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins kom til Húsavíkur í morgun
Grímseyjarferjan Sæfari
2691. Sæfari ex Oileain Arann. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Grímseyjarferjan Sæfari kemur til hafnar á Dalvík á Sumardaginn fyrsta en hún hefur siglt á milli Dalvíkur og Grímseyjar frá því vorið 2008. Sæfari var smíðaður árið 1991 og hét áður Oileain Arann. Hann er 39,6 metra langur og breidd hans 10 metrar. Sæfari mælist 507 … Halda áfram að lesa Grímseyjarferjan Sæfari
Le Champlain á Skjálfanda
IMO: 9814038. Le Champlain á Skjálfanda í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skemmtiferðaskipið Le Champlaine kom til Húsavíkur snemma í morgun og lagði síðan úr höfn um miðjan dag. Le Champlaine var smíðað árið 2018 hjá Vard Group AS í Noregi, það er 131, 46 metrar að lengd og 18 metra breitt. Það mælist 9,976 GT … Halda áfram að lesa Le Champlain á Skjálfanda
NG Endurance kom til Húsavíkur
IMO:9842554. National Geographic Endurance. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Farþegaskipið National Geographic Endurance kom til Húsavíkur síðdegis í gær og lét aftur úr höfn síðar um kvöldið. NG Endurance var smíðað árið 2020 og er í sinni jómfrúarferð. Á vef Faxaflóahafna segir frá því að skipinu hafi formlega verið gefið nafn í Reykjavík á dögunum. Þar segir einnig: … Halda áfram að lesa NG Endurance kom til Húsavíkur
Crystal Endeavor á Skjálfanda
IMO 9821873. Crystal Endeavor á Skjálfanda. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Skemmtiferðaskipið Crystal Endeavor, sem er í jómfrúarferð sinni við Íslandsstrendur, kom til Húsavíkur í dag og lét aftur úr höfn eftir kvöldmat. Á myndinni er skipið að skríða af stað og hafnsögubáturinn Sleipnir að snúa til hafnar. Skipið sem er sex stjörnu lúxussnekkja upp frá Reykjavík … Halda áfram að lesa Crystal Endeavor á Skjálfanda









