Ný Cleopatra til Þrándheims

Vigrunn TR-4-F. Ljósmynd Trefjar.is 2018. Bátasmiðjan Trefjar í Hafnarfirði afgreiddi nú á dögunum nýjan Cleopatra bát til Frøya sem er eyja rétt fyrir utan Þrándheim í Noregi. Kaupendur bátsins eru bræðurnir Andre og Karl Vikan sem jafnframt verða skipverjar á bátnum. Báturinn, sem hefur hlotið nafnið Vigrunn, mælist 11 brúttótonn að stærð. Vigrunn er af … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra til Þrándheims →

Cuxhaven NC 100 á Eyjafirði

Cuxhaven NC 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Cuxhaven NC 100 er hér á siglingu undir Ólafsfjarðarmúla á leið sinni til Akureyrar í októbermánuði í fyrra. Skipið hafði verið við grálúðu- og karfaveiðar við Grænland og kom til löndunar á Akureyri. Við Haukur Sigtryggur fórum með Sigurjóni Herbertssyni á Fanney EA 82 til móts við togarann … Halda áfram að lesa Cuxhaven NC 100 á Eyjafirði →

Berlin NC 105

Berlin NC 105. Ljósmynd Óskar Franz 2018. Frystitogarinn Berlin NC 105 kom til Reykjavíkur í sumar og tók Óskar Franz þessar myndir við það tækifæri. Skipið var smíðað hjá Myklebust skipasmiðastöðinni í Noregi fyrir Deutsche Fischfang Union, DFFU, dótturfélags Samherja í Þýskalandi, og er systurskip Cuxhaven NC100. "Skipin voru hönnuð af Rolls Royce, sem einnig framleiddi aðalvélarnar.  … Halda áfram að lesa Berlin NC 105 →

Mark ROS 777 við Eyjagarð.

Mark ROS 777. Ljósmynd Magnús Jónsson 2018. Maggi Jóns tók þessa mynd í dag af þýska skuttogaranum Mark ROS 777 þar sem hann lá við Eyjagarð í Örfirisey. Skipið var smíðað í Tersan skipasmíðastöðinni í Tyrklandi og afhent eigandanum, Parlevliet & Van der Plas group í júní 2015. Heimahöfn hans er í Rostock Togarinn er … Halda áfram að lesa Mark ROS 777 við Eyjagarð. →

Svend C GR-6-23

Svend C G-6-23. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Grænlenski frystitogarinn Svend C GR-6-23 kom til hafnar í Reykjavík á sunnudagsmorgni í júnímánuði sl. Ég var staddur í höfuðborginni og sá til ferða hans á AIS-kerfinu. Ég beið hans inn við sundin og tók meðfylgjandi myndir.  Svend C var hannaður af fyrirtækinu Skipsteknisk í Noregi og smíðaður í … Halda áfram að lesa Svend C GR-6-23 →