Mekhanik Sergey Agapov

Mekhanik Sergey Agapov MK 0538. Ljósmynd Börkur Kjartansson 2017. Mekhanik Sergey Agapov heitir þetta risaskip sem Börkur Kjartansson myndaði á miðunum árið 2017. Það er 115 metra langt og 20 metra breitt. 8,278 GT að stærð. Smíðað 2014 í Nanindah Mutiara Shipyard, í Batam í Indónesíu og siglir undir rússnesku flaggi með heimahöfn í Murmansk. Með því … Halda áfram að lesa Mekhanik Sergey Agapov →

Eirik H-18-S

Erik H-18-S. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Bátasmiðjan Seigla á Akureyri afhenti þennan bát, Eirik H-18-S til Noregs í aprílmánuði árið 2012. Á þessum myndum er hann í reynslusiglingu á Eyjafirði en hélt áleiðis til Noregs síðar þennan dag sem var 14. dagur aprílmánaðar. Eirik, sem var með heimahöfn í Skogsvåg, heitir í dag Moagutt M-18-M. … Halda áfram að lesa Eirik H-18-S →

Erika GR-18-119

Erika GR-18-119 ex Birtingur NK 119. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Grænlenska loðnuskipið Erika GR-18-119 lætur hér úr höfn á Húsavík í janúarmánuði árið 2012. Erika hét upphaflega Hákon ÞH 250 og var smíðuð fyrir Gjögur h/f í Ulsteinsvik, Noregi árið 1987. Skipið er 820 brúttórúmlestir, 57 metrar að lengd og 12,5 metrar að breidd.  Þegar … Halda áfram að lesa Erika GR-18-119 →

Slippurinn Akureyri annast framleiðslu og uppsetningu á vinnsludekki í nýjan frystitogara Nergård Havfiske

Ljósmynd slipp.is Slippurinn Akureyri hefur gengið frá samningi um hönnun, framleiðslu og uppsetningu á vinnsludekki um borð í nýjan frystitogara norsku útgerðarinnar Nergård Havfiske. Frá þessu segir á nýrri heimasíðu fyrirtækisins: Norska skipasmíðastöðin Vard sér um smíði á skipinu og mun Slippurinn hafa yfirumsjón með vinnsludekkinu og býður upp á heildarlausn ásamt undirvertökum eins og … Halda áfram að lesa Slippurinn Akureyri annast framleiðslu og uppsetningu á vinnsludekki í nýjan frystitogara Nergård Havfiske →

Ný Cleopatra 40 til Skotlands

Soph-Ash-Jay 3. Ljósmynd Trefjar.is 2019. Bátasmiðjan Trefjar í Hafnarfirði afrgreiddi núna nýverið nýjan Cleopatra bát til Burnmouth á austurströnd Skotlands. Að útgerðinni stendur John Affleck sjómaður frá Burnmouth sem jafnframt er skipstjóri á bátnum. Nýi báturinn hefur hlotið nafnið Soph-Ash-Jay-3 og er 15brúttótonn.  Soph-Ash-Jay-3 er af gerðinni Cleopatra 40 og er fjórði báturinn sem Trefjar … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra 40 til Skotlands →

Ný Cleopatra 33 til Mæri

Bajas M-1-RA. Ljósmynd Trefjar.is 2019. Bátasmiðjan Trefjar í Hafnarfirði afgreiddi nú á dögunum nýjan Cleopatra bát til Vågstranda sem er sveitarfélag í Mæri og Raumsdal í Noregi. Kaupandi bátsins eru feðgarnir Johan og Tobias Solgård og er Tobias skipstjóri á bátnum sem hefur hafið veiðar. Báturinn, sem hefur hlotið nafnið Bajas, er af gerðinni Cleopatra 33 … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra 33 til Mæri →

Gadus Njord N-125-VV

Gadus Njord N-125-VV. Ljósmynd Eiríkur Sigurðsson 2017. Hér koma tvær myndir af norska skuttogaranum Gadus Njord sem Eiríkur Sigurðsson skipstjóri á Reval Viking tók. Það er útgerðin Havfisk í Noregi sem á Gadus Njord en á árunum 2013 og 2014 fékk fyrirtækið afhenta þrjá nýja togara eftir sömu teikningu, Gadus Poseidon, Gadus Njord og Gadus Neptun. … Halda áfram að lesa Gadus Njord N-125-VV →

Patricia III SZN 72

Patricia III SZNN 72 ex Bravó. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Patricia III SNZ 72 frá Szczecin í Póllandi kom til Húsavíkur í ágústmánuði árið 2004. Togarinn, sem var þá í eigu Íslendinga, sigldi undir pólsku flaggi og hafði verið að veiðum í Barentshafi og kom til löndunar á Húsavík. Skuttogari þessi hét upphaflega Ögri RE … Halda áfram að lesa Patricia III SZN 72 →

Torita M-123-A

LHAH. Torita M-123-A ex Torita 1. Ljósmynd Jón Steinar. Torita M-123-A heitir þessi þessi línuveiðari sem Jón Steinar myndaði við komu til Grindavíkur fyrir einhverjum misserum síðan. Torita hét upphaflega Geir og var smíðaður 1978 í Fiskarstrand í Noregi. Hann er 39 metra langur, 7 metra breiður og mælist 377 GT að stærð. Fyrri nöfn … Halda áfram að lesa Torita M-123-A →