Þrír bláir

Dragnótabátar í Húsavíkurhöfn. Ljósmynd Hafþór Hreiðasson 2024. Blár er allsráðandi litur í íslenska bátaflotanum og hér sjást þrír slíkir í Húsavíkurhöfn sl. sunndag. Hafborgin liggur utan á Þvergarðinum og Geir fyrir innan en Bárður kemur að. Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn. By clicking on the images … Halda áfram að lesa Þrír bláir →

Háey I og Hafborg við bryggju

2995. Háey I ÞH 295 - 2940. Hafborg EA 152. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Hér gefur að líta línubátinn Háey I ÞH 295 og neta- og dragnótabátinn Hafborgu EA 152 þar sem þeir lágu við Suðurgarðinn í Húsavíkurhöfn í gærkveldi. Háey I er gerð út af GPG Seafood ehf. á Húsavík en er með heimahöfn … Halda áfram að lesa Háey I og Hafborg við bryggju →

Bárður SH 81

2965. Bárður SH 81. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Það var farið að skyggja þegar Bárður SH 81 frá Ólafsvík kom til hafnar á Húsavík á áttunda tímanum í kvöld. Bárður SH 81 var smíðaður fyrir Bárð SH 81 ehf. en að því fyrirtæki stendur Pétur Pétursson skipstjóri og útgerðarmaður á Arnarstapa á Snæfellsnesi. Smíði bátsins fór … Halda áfram að lesa Bárður SH 81 →

Varnebank kom í morgun

IMO 9213739. Varnebank. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Hollenska flutningaskipið Varnebank kom til Húsavíkur í morgun með hráefnisfarm til PCC á Bakka. Varnebank, sem er með heimahöfn í Delfzijl, var smíðað í Hollandi árið 2002. Skipið er 6,130 GT að stærð, lengd þess er 132 metrar og breiddin 16 metrar. Með því að smella á myndina … Halda áfram að lesa Varnebank kom í morgun →

Þorsteinn í slipp

926. Þorsteinn GK 15 ex Þorsteinn EA 15. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þor­steinn GK 15, sem gerður var lengi út frá Raufar­höfn, er hér í slipp á Húsavík um árið. Báturinn var smíðaður fyrir Aðalstein Loftsson á Dalvík í Fal­ken­berg í Svíþjóð árið 1946 og hefur alla tíð heitið Þorsteinn. Upphaflega EA 15, þá GK 15 … Halda áfram að lesa Þorsteinn í slipp →

Sæfell ÍS 820

221. Sæfell ÍS 820 ex Vonin KE 2. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sæfell ÍS 820 hét upphaflega Pálína SK 2 frá Hofsósi og síðar lengi vel Vonin KE 2. Haukur Sigtryggur sendi miða: 0221....Pálína SK 2... TF-HY. Skipasmíðastöð: ? Hardinxveld. Hollandi. 1960. 1963 = Brúttó: 180. U-þilfari: 142. Nettó: 68. Lengd: 30,52. Breidd: 6,84. Dýpt: 3,13. … Halda áfram að lesa Sæfell ÍS 820 →

Komu sjóleiðina á Mærudaga

108. Húni II EA 740 ex Húni II. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Það komu góðir gestir sjóleiðina á Mærudagana sem standa yfir á Húsavík þessa helgina. Þetta voru skipverjar á Húna II sem sigldu frá Akureyri til Húsavíkur til að taka þátt í bæjargátíðinni. Húni II var smíðaður í skipasmíðastöð KEA á Akureyri árið 1963 og … Halda áfram að lesa Komu sjóleiðina á Mærudaga →