Sigurþór GK 43

1427. Sigurþór GK 43 ex Árni ÓF 44. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sigurþór GK 43 hét upphaflega Árni ÓF 44 og var smíðaður 1975 hjá Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd. Báturinn, sem var rétt tæplega 30 brl. að stærð, var smíðaður fyrir Árna sf. á Ólafsfirði en árið 1983 er hann seldur til Grindavíkur. Þar fær … Halda áfram að lesa Sigurþór GK 43 →

Tjaldanes GK 525

124. Tjaldanes GK 525 ex Gaukur GK 660. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Netabáturinn Tjaldanes GK 525 kemur hér til hafnar í Njarðvík sumarið 2004. Báturinn var smíðaður árið 1962 í Molde í Noregi fyrir Gauksstaði h/f í Garði og hét Jón Finnsson GK 506. Hann hét síðar Friðþjófur SU 103, Verðandi KÓ 40 og Verðandi … Halda áfram að lesa Tjaldanes GK 525 →

Hafsúla KE 46

1470. Hafsúla KE 46 ex Haförn ÍS 177. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hafsúla KE 46 hét upphaflega Hafsúlan SH 7, smíðuð fyrir Halldór S. Sveinsson í Skipasmíðastöðinni Dröfn hf. í Hafnarfirði árið 1976. Afhent í janúar 1977, 37 brl. að stærð búinn 365 hestafla Caterpillar aðalvél. Heimahöfn Rif á Snæfellsnesi. Í ágústmánuði 1977 var báturinn skráður … Halda áfram að lesa Hafsúla KE 46 →

Suðurey VE 500

1258. Suðurey VE 500 ex Gunnar Jónsson VE 500. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Suðurey VE 500 hét upphaflega Gunnar Jónsson VE 500 og var smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri árið 1972. Báturinn, sem var 147 brl. að stærð, var smíðaður fyrir Jón Valgarð Guðjónsson, Vestmannaeyjum og Ísfell hf. Reykjavík.  Árið 1974 var Gunnar Jónsson VE 500 … Halda áfram að lesa Suðurey VE 500 →

Sleipnir

2250. Sleipnir. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Hafnsögubáturinn Sleipnir heldur hér til móts við flutningaskip sem kom til Húsavíkur í gær. Sleipnir, sem er í eigu Hafnarsamlags Norðurlands, var smíðaður á Akureyri árið 1995 og er 41 BT að stærð. Togkraftur hans er 11,2 tonn. 2250. Sleipnir. Ljósmyndir Hafþór Hreiðarsson 2024. Með því að smella á … Halda áfram að lesa Sleipnir →

Selfoss

IMO 9433456. Selfoss ex Shopia. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Selfoss, skip Eimskipafélags Íslands hf., siglir hér út Eyjafjörð í gær. Selfoss er 700 gámaeininga skip, 130 metra langt, 21 metra breitt og 7,464 brúttótonn að stærð. Eimskip keypti skipið, sem smíðað var 2008, árið 2017 en það hét áður Sophia. Selfoss siglir undir færeyskum fána með heimahöfn … Halda áfram að lesa Selfoss →