833. Sæfaxi VE 25 ex Faxi ÁR 25. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Sæfaxi VE 25 hét upphaflega Faxi GK 95 og var smíðaður í Innri Njarðbík árið 1939. Hann var 26 brl. að stærð. Árið 1949 varð báturinn Faxi ÍS 118 með heimahöfn á Flateyri og þrem árum síðar var hann kominn til Stokkseyrar. Þá fékk … Halda áfram að lesa Sæfaxi VE 25
Flokkur: Bátar
Eldhamar GK 13
1115. Eldhamar GK 13 ex Nausti NK 97. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Eldhamar GK 13 liggur hér við bryggju í Grindavík um árið en þetta nafn bar báturinn í nokkur ár á tíunda áratug síðustu aldar. Upphaflega Kópur SU 154 154 frá Reyðarfirði og var smíðaður árið 1970 hjá Skipasmíðastöð Marsellíusar Bernharðssonar hf. á Ísafirði. Lesa … Halda áfram að lesa Eldhamar GK 13
Hákon ÞH 250 í Krossanesi
1059. Hákon ÞH 250 ex heimir SU 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hákon ÞH 250 er hér að landa loðnu í Krossanesi um árið en hann hét upphaflega Heimir SU 100 frá Stöðvarfirði. Heimir var smíðaður fyrir Varðarútgerðina hf. í Noregi árið 1967 og mældist 363 brl. að stærð. Gjögur hf. á Grenivík keypti skipið árið … Halda áfram að lesa Hákon ÞH 250 í Krossanesi
Eyborg EA 59
217. Eyborg EA 59 ex Sæunn Sæmundsdóttir ÁR 60. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Eyborg EA 59 frá Hrísey er hér á rækjumiðunum fyrir Norðurlandi um árið en þarna var hún að taka japanskan eftirlitsmann með í land sem hafði verið um borð í Geira Péturs ÞH 344. Eyborg hét upphaflega Vattarnes SU 220 og var gerð … Halda áfram að lesa Eyborg EA 59
Nausti NK 97
1115. Nausti NK 97 ex Sigrún ÍS 113. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Nausti NK 97 var gerður út frá Neskaupstað á árunum 1990 - 1992 en upphaflega hét hann Kópur SU 154 frá Reyðarfirði. Báturinn var smíðaður árið 1970 hjá Skipasmíðastöð Marsellíusar Bernharðssonar hf. á Ísafirði og var 38 brl. að stærð. Kópur var seldur til … Halda áfram að lesa Nausti NK 97
Hafnarröst ÁR 250
249. Hafnarröst ÁR 250 ex Höfrungur II ÁR 250. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Hafnarröst ÁR 250 hét upphaflega Höfrungur III AK 250 frá Akranesi. Höfrungur III, sem var 267 brl. að stærð, var smíðaður fyrir fyrir Harald Böðvarsson & co á Akranesi árið 1964. Smíðin fór fram hjá skipasmíðastöðinni Kaarbös Mek. Verksted í Harstad í Noregi. … Halda áfram að lesa Hafnarröst ÁR 250
Wilson North siglir inn Hvalfjörð
IMO 9430947. Wilson North. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Flutningaskipið Wilson North siglir hér inn Hvalfjörðinn á dögunum á leið sinni að Grundartanga. Skipið, sem er 123 metrar á lengd, 16 metra breitt og mælist 6,118 GT að stærð. Wilson North var smíðað árið 2010 og siglir undir Maltnesku flaggi með heimahöfn í Walletta. Með því að smella á … Halda áfram að lesa Wilson North siglir inn Hvalfjörð
Bára SH 27
2274. Bára SH 27 ex Sandvík EA 200. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Bára SH 27 hét upphaflega Sandvík SK 188 og var smíðuð á Ísafirði 1996 hjá Skipasmíðastöðinni hf. fyrir útgerðarfyrirtækið Tind ehf. á Sauðárkróki. Árið 2001 var báturinn seldur til Stykkishólms þar sem hann verður Sandvík SH 53. Hann var lengdur árið 2005 og … Halda áfram að lesa Bára SH 27
Hákon ÞH 250
3059. Hákon ÞH 250. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2024. Hákon ÞH 250 er kominn til landsins eins kemur fram í færslu frá því gær. Hákon var smíðaður hjá Karstensen Skibsvært A/S í Skagen. Hann er 75,4 metrar á lengd,16,5 metrar á breidd og mælist 3,178 BT að stærð. Það er Gjögur hf. sem lét smíða … Halda áfram að lesa Hákon ÞH 250
Cape Race á Húsavík
IMO 5402198. Cape Race. Ljósmynd Aðalsteinn Árni Baldursson 2024. Leiðangursskipið Cape Race kom til Húsavíkur í vikunni og tók Aðalsteinn Árni Baldursson þessa mynd. Cape Race var smíðaður sem úthafstogari 1963 í Kanada. Stærð skipsins er 323 GT og lengd þess 38 metrar. Breiddin átta metrar. Cape Race siglir undir flaggi Cook Islands. Hér má … Halda áfram að lesa Cape Race á Húsavík









