2048. Drangavík VE 80 ex Drangavík VE 555. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Togbáturinn Drangavík VE 80 kom til löndunar í Vestmannaeyjum í morgun og tók Hólmgeir Austfjörð þessar myndir þegar hún kom að. 2048. Drangavík VE 80 ex Drangavík VE 555. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Nýlega var umfjöllun um Drangavík hér á síðunni svo myndirnar … Halda áfram að lesa Drangavík VE 80
Flokkur: Bátar
Erling KE 140
1016.Erling KE 140 ex Sigurður Pálmason HU 333. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér sjáum við þá þrjá báta Saltvers ehf. í Reykjanesbæ sem borið hafa nafnið Erling og verið KE 140. Saga bátanna mun ekki koma ítarlega fram hér að sinni en á efstu myndinni er sá sem bar KE 140 fyrstur af Erlingunum þrem. Þessi … Halda áfram að lesa Erling KE 140
Þorsteinn GK 16
145. Þorsteinn GK 16 ex Kópur GK 175. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þorsteinn GK 16 leggur hér úr höfn á Húsavík áleiðis á rækjumiðin úti fyrir Norðurlandi Þorsteinn hét upphaflega Lómur KE 101 og var smíðaður í Molde í Noregi 1963 fyrir Brynjólf hf. í Keflavík. Báturinn var 202 brl. að stærð og búinn 660 hestafla … Halda áfram að lesa Þorsteinn GK 16
Falksea kom með salt
Falksea. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Norska flutningaskipið Falksea kom til Húsavíkur í morgun með saltfarm. Um leið og hafnarstarfsmenn höfðu bundið Önnu (Sem segir frá í næstu færslu á undan) við bryggju voru landfestar Falksea leystar og lét skipið úr höfn og sigldi áleiðis til Dalvíkur. Falksea er 90 metra langt og 14 metra breytt. … Halda áfram að lesa Falksea kom með salt
Guðbjörg RE 21
1201.Guðbjörg RE 21. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1982. Guðbjörg RE 21 kemur hér að bryggju í Þorlákshöfn á vetravertíðinni 1982 og Njáll RE 275 hefur komið að landi áður. Guðbjörg RE 21 var sjósett þann 30. desember 1971 á Fáskrúðsfirði og 3. janúar 1972 skrifaði Albert Kemp fréttaritari Morgunblaðsins frétt þar sem m.a þetta kom fram: FIMMTUDAGINN 30. … Halda áfram að lesa Guðbjörg RE 21
Andvari ÞH 81
278. Andvari ÞH 81 ex TH 81. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Hagbarður ÞH 81 var smíðaður á Akureyri 1942 og hét upphaflega Baldvin Þorvaldsson EA 721 frá Dalvík. Hann var smíðaður í Skipasmíðastöð KEA fyrir Baldvin, Aðalstein og Guðjón Loftssyni á Dalvík. Upphaflega var 40 hestafla Skandia aðalvél í bátnum en 1955 var sett í hann … Halda áfram að lesa Andvari ÞH 81
Bergey VE 544
2744. Bergey VE 544. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Bergey VE 544 kom inn til löndunar í Vestmannaeyjum í morgun og tók Hólmgeir Austfjörð þessa myndasyrpu sem nú birtist. 2744. Bergey VE 544. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Bergey VE 544 er annað tveggja systurskipa Bergs-Hugins ehf. í Vestmannaeyjum sem smíðuð voru í Póllandi árið 2007. Hitt … Halda áfram að lesa Bergey VE 544
Hraunsvík GK 75 í kröppum sjó
1907. Hraunsvík GK 75 ex Konráð SH 60. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Enn er leitað í myndir Jóns Steinars Sæmundssonar í Grindavík en nú er það Hraunsvík GK 75 í innsiglingunni til Grindavíkur. Myndirnar tók Jón Steinar í gær þegar Hraunsvíkin kom að landi eftir að hafa skotist út og lagt netin þrátt fyrir þungan … Halda áfram að lesa Hraunsvík GK 75 í kröppum sjó
Hrafn GK 111
1401. Hrafn GK 111 ex Ágúst GK 95. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Jón Steinar tók þessar flottu myndir og fleiri til af línuskipinu Hrafni GK 111 koma til hafnar í Grindavík í dag. Hrafn GK 111 hét upphaflega Gullberg VE 292 og var smíðaður hjá Baatservice Verft A/S í Mandal í Noregi 1974 fyrir Ufsaberg … Halda áfram að lesa Hrafn GK 111
Guðrún Jakobsdóttir EA 144
1968. Guðrún Jakobsdóttir EA 144 ex María Pétursdóttir VE 14. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2006. Guðrún Jakobsdóttir EA 144 var gerð út af Snudda ehf. á Dalvík á árunum 2005-2006 og landaði m.a á Húsavík í september 2006. Upphaflega hét báturinn á Íslenskri skipaskrá Arnar KE 260 og var gerður út frá Keflavík. Smíðaður árið 1987 … Halda áfram að lesa Guðrún Jakobsdóttir EA 144









