Farsæll SH 30 að veiðum

1629. Farsæll SH 30 ex Klængur ÁR 2. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Farsæll SH 30 er hér að veiðum suðvestur af Bjargtöngum í gærmorgun. Farsæll er 177 rúmlesta/237 BT togbátur í eigu FISK-Seafood ehf. á Sauðárkróki. Farsæll SH 30 hét upphaflega Eyvindur Vopni NS 70 og var smíðaður 1983 hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar h/f fyrir Kolbeinstanga … Halda áfram að lesa Farsæll SH 30 að veiðum

Dala-Rafn VE 508

2758. Dala-Rafn VE 508. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Hólmgeir Austfjörð tók þessa myndir í dag þegar Ottó N Þorláksson VE 5 og Dala-Rafn VE 508 mættust rétt norðan Hrollaugseyja. 2758. Dala-Rafn VE 508. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Dala Rafn VE 508 var smíðaður í Póllandi árið 2007 fyrir samnefnt útgerðarfélag. Þá var hann grænn en Ísfélag … Halda áfram að lesa Dala-Rafn VE 508

Húsvíkurbátar á vertíð

1420.Kristbjörg ÞH 44 í Þorlákshöfn 1982. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Á árunum 1982-1987 fóru bátar frá Húsavík á vertíð í Breiðafjörðinn og 1982 var Skálaberg ÞH 244 í Þorlákshöfn. Kristbjörg ÞH 44 var einn þessara báta sem var í Ólafsvík 1982. Eftir páskana var farið suður fyrir ásamt Geira Péturs ÞH 344 og Sigþóri ÞH 100 … Halda áfram að lesa Húsvíkurbátar á vertíð

Kristrún RE 177

256. Kristrún RE 177 ex Albert Ólafsson KE 39. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Línubáturinn Kristrún RE 177 kemur hér til hafnar í Reykjavík um árið. Upphaflega hét báturinn Ólafur Friðbertsson ÍS 34 frá Súgandafirði, smíðaður Flekkefjord í Noregi 1964. Síðar Albert Ólafsson KE 39 og um tíma HF 39. Aftur KE 39 og síðan þetta nafn sem hann … Halda áfram að lesa Kristrún RE 177

Reykjaborg RE 25

2325. Reykjaborg RE 25. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Þessar myndir voru teknar 30. ágúst 2003 af Reykjaborg RE 25 koma til hafnar í Reykjavík. Ekki var hún þó að koma úr róðri því allnokkur hópur manna var þarna um borð. Og báturinn nýmálaður og fínn og Bugtin handan við hornið. 2325. Reykjaborg RE 25. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson … Halda áfram að lesa Reykjaborg RE 25

Síldin háfuð um borð í Dagfara ÞH 70

Um borð í 1037. Dagfara ÞH 70. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1967. Þessar tvær myndir tók Hreiðar Olgeirsson um borð í Dagfara ÞH sumarið 1967. Þarna er verið að háfa síld í bátinn sem var glænýr þegar þettta var. Kom í fyrsta skipti til heimahafnar 17. maí það ár. Dagfari ÞH 70 var smíðaður fyrir Barðann … Halda áfram að lesa Síldin háfuð um borð í Dagfara ÞH 70

Vestmannaey VE 444

2444. Vestmannaey VE 444. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Í síðustu viku myndaði Hólmgeir Austfjörð togskipið Bergey VE 544 koma til hafnar í Vestmannaeyjum en í dag var það Vestmannaey VE 444 sem hann náði að fanga á kortið. 2444. Vestmannaey VE 444. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Bergey VE 544 og Vestmannaey VE 444, sem smíðaðar … Halda áfram að lesa Vestmannaey VE 444