2. Akurey KE 121 ex Akurey SF 52. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Bæjarráð Hornafjarðar tók þá ákvörðun fyrir síðustu áramót að farga Akurey SF 2 sem verið hefur á þurru landi við höfnina um árabil. Á Fésbókarsíðu sveitarfélagsins segir í dag: Í dag var Akurey rifin en það vekur óhug hjá mörgum enda hefur báturinn mikið … Halda áfram að lesa Akurey KE 121
Flokkur: Bátar
Glaður HU 67
1065. Glaður HU 67 ex Glaður KE 67. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1986. Glaður HU 67 er hér að manúera í höfninni á Hvammstanga sumarið 1986. Glaður KE 67 var smíðaður í Svíþjóð 1968 fyrir Glað hf. í Keflavík og var 43 brl. að stærð. Hann var með 300 hestafla Deutz aðalvél . Glaður KE var … Halda áfram að lesa Glaður HU 67
Geiri Péturs ÞH 344
1207. Geiri Péturs ÞH 344 ex Sigurbergur GK 212. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1980. Geiri Péturs ÞH 344 kemur hér til hafnar á Húsavík úr grálúðutúr vorið 1980 þar sem línan var beitt um borð. Geiri Péturs ÞH 344 var smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri 1971 og hét upphaflega Sigurbergur GK 212. Rétt er að geta … Halda áfram að lesa Geiri Péturs ÞH 344
Draupnir ÞH 180
1142. Draupnir ÞH 180 ex Litlanes ÞH 52. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Draupnir ÞH 180 hét upphaflega Búi EA 100 og var smíðaður árið 1971 í Skipasmíðastöð KEA fyrir Stefán Stefánsson á Dalvík. Báturinn var tæpar 12 brl. að stærð búinn 163 hestafla Scaniavél. 1977 var Búi EA 100 seldur til Þórshafnar þar sem hann fékk … Halda áfram að lesa Draupnir ÞH 180
Baldur GK 97
311. Baldur GK 97 ex Baldur KE 97. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Dragnótabáturinn Baldur GK 97 kemur hér til hafnar í Keflavík um árið. Baldur KE 97 var smíðaður í Djupvik í Svíþjóð 1961 og mældist 40 brl. að stærð. Eigendur hans voru Ólafur Björnsson og Hróbjartur Guðjónsson í Keflavík en 1971 var skráður eigandi Baldur … Halda áfram að lesa Baldur GK 97
Stafnes KE 130
235. Stafnes KE 130 ex Ásþór RE 395. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Stafnes KE 130 var einn þeirra báta sem stunduðu síldveiðar inn á fjörðum austanlands á níunda áratugnum og hér lónar báturinn inn á einhverjum firðinum. Þessi bátur bar bara tvö nöfn á þeim árum sem hann var í Íslenska fiskiskipaflotanum. Hann var smíðaður í … Halda áfram að lesa Stafnes KE 130
Sæljón EA 55
839. Sæljón EA 55 ex Sæljón SH 103. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson Hér er Sæljón EA 55 að láta úr höfn á Húsavík eftir að hafa verið þar um tíma meðan skipt var um brú á bátnum. Sennilega 1985. Sæljón RE 317 var smíðað fyrir Gunnar Guðmundsson skipstjóra og útgerðarmann í Esbjerg í Danmörku árið 1955 … Halda áfram að lesa Sæljón EA 55
Reynir GK 47
733. Reynir GK 47 ex Reynir ÁR 18. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Reynir GK 47 kemur hér til hafnar í Grindavík um miðbik níunda áratugs síðustu aldar. Báturinn hét upphaflega Reynir VE 15, smíðaður í Strandby í Danmörku árið 1958. Hann var 72 brl. að stærð. Eigendur hanns voru Páll og Júlíus Ingibergssynir frá Hjálmsholti í … Halda áfram að lesa Reynir GK 47
Sólfari AK 170
1156. Sólfari AK 170 ex Fagurey SH 71. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér er Sólfari AK 170 að færa sig til í Hafnarfjarðarhöfn um árið en Sólfari hét upphaflega Arinbjörn RE 54 og var smíðaður á Akureyri 1971. Í 12. tbl. Ægis 1971 sagði m.a: Í apríl mánuði s.l. hljóp af stokkunum nýtt 149 brl. stálfiskiskip … Halda áfram að lesa Sólfari AK 170
Fróði II ÁR 38
2773. Fróði II ÁR 38 ex Endeavour III. Ljósmynd Þór Jónsson. Þór Jónsson tók þessar myndir af Fróða II ÁR 38 koma til hafnar á Djúpavogi. Fróði II ÁR 38 hét áður Endeavour III og var smíðaður árið 1998 í Macduff Yard í Skotlandi. Hann er 27,41 metrar að lengd og 8,52 að breidd. 2773. … Halda áfram að lesa Fróði II ÁR 38









