72. Kristinn Lárusson GK 500 ex Hrafnseyri GK 411. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Kristinn Lárusson GK 500, sem hér sést við bryggju í Sandgerði, hét upphaflega Grótta RE 128 og var smíðaður í Harstad í Noregi 1963. Kristinn Lárusson var síðasta nafnið sem báturinn bar á íslenskri skipaskrá en önnur voru auk Gróttu RE 128, … Halda áfram að lesa Kristinn Lárusson GK 500
Flokkur: Bátar
Stapavík AK 132
2323. Stapavík AK 132. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Stapavík AK 132 var smíðuð árið 1998 hjá Skipasmíðastöðinni hf. á Ísafirði og kom fyrst til heimahafnar 19. desember það ár. Stapavík var smíðuð fyrir samnefnt fyrirtæki á Akranesi sem átti bátinn til ársins 2005 en þá var hann seldur norður í Grímsey og fékk nafnið Hafborg EA … Halda áfram að lesa Stapavík AK 132
Þorsteinn GK 16
Þorsteinn GK 16 ex Svanur SH 111. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þorsteinn GK 16 var keyptur til Grindavíkur í aprílmánuði 1997 og kom í stað nafna síns sem strandaði undir Krísuvíkurbjargi 10. mars sama ár. Báturinn, sem Hóp hf. keypti frá Stykkishólmi þar sem hann bar nafnið Svanur SH 111, var 138 brl. að stærð. Hann … Halda áfram að lesa Þorsteinn GK 16
Páll Jónsson GK 7 dregur línuna undan Hólmbergsvita
2957. Páll Jónsson GK 7. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2026. Jón Steinar tók þessar myndir við Hólmbergsvita í gær en þar undn var Páll Jónsson GK 7 að draga línuna. Vindur var um 20 metrar á sekúndu af suðvestri og lítið næði að hafa nema í skjóli af landinu. 2957. Páll Jónsson GK 7. Ljósmyndir … Halda áfram að lesa Páll Jónsson GK 7 dregur línuna undan Hólmbergsvita
Harpa HU 4
1126. Harpa HU 4 ex Álftafell SU 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Harpa HU 4 frá Hvammstanga, sem liggur hér við bryggju á Akureyri vorið 2017, hét upphaflega Skálavík SU 500 og var smíðuð árið 1970 hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar hf. Báturinn hefur borið ýmis nöfn í gegnum tíðina og tekið talsverðu breytingum og mælist nú 65 BT að … Halda áfram að lesa Harpa HU 4
Garðar og María Júlía í Húsavíkurslipp
260. Garðar - 151. María Júlía. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026. Fyrir þrem árum birtist hér mynd sem tekin var rétt fyrir síðustu aldamót í Stykkishólmi og sýndi báta í slippnum hjá Skipavík. Þetta voru þrír bátar, Sveinbjörn Jakobsson SH 10, Haukaberg SH 20 og María Júlía BA 36. Í dag myndaði ég tvo af þessum … Halda áfram að lesa Garðar og María Júlía í Húsavíkurslipp
Sigþór ÞH 100
185. Sigþór ÞH 100 ex Sigurpáll GK 375. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sigþór ÞH 100 hét upphaflega Sigurpáll GK 375 og var smíði no.46. frá Marstrands Mekaniska Verkstad A/B. í Marstrand í Svíþjóð. Hann kom til landsins í aprílmánuði 1963. Útgerðarfélagið Vísir hf.á Húsavík keypti bátinn árið 1977 eftir að hann hafði verið endurbyggður í Dráttarbraut Keflavíkur … Halda áfram að lesa Sigþór ÞH 100
Björg Jónsdóttir ÞH 321
263. Björg Jónsdóttir ÞH 321. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1985. Hér gefur að líta Björgu Jónsdóttur ÞH 321 nýkomna til heimhafnar á Húsavík í fyrsta sinn en það var í janúarmánuði árið 1985. Báturinn hét upphaflega Þorbjörn II GK 541 frá Grindavík og var smíðaður árið 1964 fyrir Hraðfrystihús Þórkötlustaða h/f í Grindavík. Smíðin fór fram … Halda áfram að lesa Björg Jónsdóttir ÞH 321
Matthías SH 21
2463. Matthías SH 21 ex Vestri BA 65, Ljósmynd Vigfús Markússon. Matthías SH 21 er einn Kínabátanna svokölluðu sem smíðaðir voru fyrir Íslendinga og komu til landsins með flutningaskipi árið 2001. Matthías SH 21 hét upphaflega Vestri BA 63 og var í eigu samnefnds fyrirtækis á Patreksfirði. Í lok september árið 2005 var hann orðinn Vestri … Halda áfram að lesa Matthías SH 21
Hafborg EA 152
2323. Hafborg EA 152 ex Stapavík AK 132. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2010. Grímseyjarbáturinn Hafborg EA 152 siglir hér á Skjálfanda vorið 2010 og þarna var nýbúið að lengja bátinn ef rétt er munað. Upphaflega hét báturinn Stapavík AK 132 og var smíðaður hjá Skipasmíðastöðinni á Ísafirði árið 1998. Hér má lesa nánar um bátinn sem … Halda áfram að lesa Hafborg EA 152









