
Hér er verið að skvera Neista ÍS 218 í Bolungarvíkurhöfn um árið en báturinn hét upphaflega Neisti RE 58 og var smíðaður á Fáskrúðsfirði 1970.
Seldur í árslok sama ár til Bolungarvíkur en báturinn heitir áfram Neisti og verður ÍS 218.
Hann var í Bolungarvík fram yfir aldarmót en báturinn var seldur árið 2002 á Patreksfjörð. Þar sem hann fékk nafnið Ásborg BA 84.
Árið 2009 fékk báturinn nafnið Tjaldur II ÞH 294 og heimahöfn á Húsavík.
Árið 2015 var Tjaldur II ÞH 294 seldur til Suðureyrar þar sem hann fékk nafnið Saga ÍS 430.
Undanfarin ár hefur báturinn verið í Reykjavík.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.