IMO 9346665. Brufjell ex Damsterdijk. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Norska flutningaskipið Brufjell kom til Húsavíkur í morgun og lagðist að Bökugarðinum þar sem skipað er upp hráefnisfarmi fyrir kísilver PCC á Bakka. Brufjell var smíðað í Goa á Indlandi árið 2007 og er 89,95 metra að lengd. Breidd þess er 14,4 metrar og það mælist … Halda áfram að lesa Brufjell kom í morgun
Author: Hafþór Hreiðarsson
Bensi VE 234
1284. Bensi VE 234 ex Bensi AK 234. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Bensi VE 234 var 8 brl. að stærð og smíðaður árið 1972 í Bátaiðjunni hf. á Patreksfirði. Bensi var upphaflega ÍS 234 með heimahöfn á Suðureyri en árið 1976 flutti eigandinn með hann á Akranes og báturinn varð AK 234. Það var svo árið … Halda áfram að lesa Bensi VE 234
Stebbi Hansen EA 248
6975. Stebbi Hansen EA 248 ex Funi EA 51. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009. Stebbi Hansen EA 248 kemur hér að landi á Húsavík sumarið 2009 en hann var á strandveiðum. Báturinn var smíðaður hjá Trefjum í Hafnarfirði árið 1987 og hét upphaflega Funi HF 171. Árið 1991 var bátrinn kominn í Stykkishólm þar sem Funi … Halda áfram að lesa Stebbi Hansen EA 248
Afi Aggi EA 399
399. Afi Aggi EA 399 ex Kári GK 146. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Afi Aggi EA 399 kemur hér að landi á Dalvík í júníbyrjun árið 2005 en hann hafði þá nýlega verið keyptur þangað. Báturinn, sem áður hét Kári GK 146, var smíðaður í Halmstad í Svíþjóð árið 1954 og mældist 39 brl. að … Halda áfram að lesa Afi Aggi EA 399
Kleifaberg og Mánaberg
1360. Kleifaberg ÓF 2 - 1270. Mánaberg ÓF 42. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Hér gefur að líta frystitogarana Kleifaberg ÓF 2 og Mánaberg ÓF 42 við bryggju á Ólafsfirði. Myndin var tekin þann 3. júní árið 2005 og Sjómannadagshelgin framundan. Kleifabergið hét upphaflega Engey RE 1 og var smíðað fyrir Ísfell hf. í Póllandi árið … Halda áfram að lesa Kleifaberg og Mánaberg
Sólrún EA 151
2547. Sólrún EA 151 ex Flatey AK 50. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2007. Hér koma myndir sem teknar voru í maímánuði árið 2007 og sýna Sólrúnu EA 151 sem þá var núkeypt til samnefnds fyrirtækis á Árskógssandi. Kallarnir voru nýbúnir að landa og tóku hring fyrir myndasmiðinn en báturinn hét upphaflega Siggi Bjartar ÍS 50. Hann … Halda áfram að lesa Sólrún EA 151
Bjarka og Þráni fargað ásamt fleiri bátum
5357. Þráinn ÞH 2 - 5525. Bjarki ÞH 271. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Í Morgunblaðinu í dag segir frá afdrifum sex gamallra trébáta sem staðið hafa við Safnahúsið á Húsavík í mörg ár en hurfu af sjónarsviðinu á dögunum. Fram kemur m.a í fréttinni að bátarnir hafi verið allir metnir ónýtir og Menningarmiðstöð Þingeyinga hafi … Halda áfram að lesa Bjarka og Þráni fargað ásamt fleiri bátum
Lokadagur vetrarvertíðar 11. maí
1420. Kristbjörg ÞH 44. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. 11. maí er lokadagur vetrarvertíðar samkvæmt gömlu tímatali og af því tilefni birtist hér mynd af áhöfninni á Kristbjörginni ÞH 44 draga netin. Myndina tók Hreiðar Olgeirsson þá skipstjóri á Kristbjörgu II ÞH 244, sennilega vorið 1979, en hann tók árið síðar við Kristbjörginni og var með hana til ársins … Halda áfram að lesa Lokadagur vetrarvertíðar 11. maí
Tindur seldur til Marokkó
2017. Tindur ÍS 325 ex Helgi SH 135. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2024. Tindur ÍS 325 hefur verið seldur til Marokkó og kom við í Vestmannaeyjum í vikunni á leið sinni suður til Agadir. Tindur hét upphaflega Þór Pétursson ÞH 50 og var í eigu Njarðar hf. í Sandgerði, smíðaður á Ísafirði 1989. Guðmundur Runólfsson hf. á Grundarfirði … Halda áfram að lesa Tindur seldur til Marokkó
Airisto kom til Húsavíkur í kvöld
IMO 9213727. Airisto siglir inn Skjálfanda í kvöldsólinni. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Finnska flutningaskipið Airisto kom til Húsavíkur í kvöld og lagðist að Bökugarðinum þar sem hráefnisfarmi fyrir kísilver PCC á Bakka verður skipað upp. Skipið var smíðað í Hollandi árið 2000 og hefur áður borið nöfnin Malte Rambow 2000-2003, Annalisa frá 2008-2013 og Ara … Halda áfram að lesa Airisto kom til Húsavíkur í kvöld









