2390. Björn Jónsson ÞH 345 ex Jói Berg GK 33. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Björn Jónsson ÞH 345 hét upphaflega Árni á Teigi GK 1 og var smíðaður hjá Trefjum í Hafnarfirði árið 2000. Árið 2003 fékk báturinn nafnið Jói Berg GK 33 og í upphafi árs 2007 fær hann nafnið Björn Jónsson ÞH 345. … Halda áfram að lesa Björn Jónsson ÞH 345
Author: Hafþór Hreiðarsson
Núpur BA 69
2159. Núpur BA 69 ex Örvar SH 777. Ljósmynd Vigfús Markússon 2025. Línuskipið Núpur BA 69 frá Patreksfirði er hér á siglingu en það er Oddi hf. sem gerir það út. Núpur BA 69 hét áður Örvar SH 777 frá Hellissandi en Oddi hf. keypti hann árið 2023. Upphaflega hét skipið Tjaldur II SH 370 og var … Halda áfram að lesa Núpur BA 69
Jón Gunnlaugs GK 444
1204. Jón Gunnlaugs GK 444. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Jón Gunnlaugs GK 444 var smíðaður hjá Stálsmiðjunni í Reykjavík árið 1972 fyrir Miðnes h/f í Sandgerði. Báturinn, sem var 104 brl. að stærð, var gerður út frá Sandgerði allt til þess að hann var seldur til Þorlákshafnar árið 2004. Báturinn var yfirbyggður árið 1988. Í Þorlákshöfn … Halda áfram að lesa Jón Gunnlaugs GK 444
Geir Goði GK 220
242. Geir Goði GK 220 ex Sæunn GK 220. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Geir Goði GK 220 var smíðaður í Marstrands Mek. Verksted A/B í Marstrand í Svíþjóð árið 1963. Báturinn hét upphaflega Guðbjörg GK 220 en árið 1970 fékk hann nafnið Sæunn GK 220 og sex árum síðar nafnið Geir Goði GK 220. Geir Goði var … Halda áfram að lesa Geir Goði GK 220
Kristbjörg ÞH 44
1420. Kristbjörg ÞH 44. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Kristbjörg ÞH 44 kemur hér að landi á Húsavík að vorlagi, myndi giska á ca. árið 1989 og báturinn á netum. Eins og lesa má hér voru 50 ár sl. vor frá afhendingu bátsins en hann var smíðaður fyrir Korra hf. í Skipavík í Stykkishólmi. Í dag heitir … Halda áfram að lesa Kristbjörg ÞH 44
Vinur
3048. Vinur ex Øyglimt. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Vinur, sem Sjóferðir Arnars á Húsavík gera út, kemur hér að landi úr hvalaskoðunarferð jóladagsins þar sem farþegar náðu að berja háhyrninga augum á Skjálfanda. Vinur var úr smíðaður úr plasti árið 1980 og hét áður Øyglimt en Sjóferðir Arnars keypti bátinn frá Noregi fyrr á árinu. Báturinn er rúmlega … Halda áfram að lesa Vinur
Sólberg ÓF 1
2917. Sólberg ÓF 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Frystitogarinn Sólberg ÓF 1 kom til olíutöku í Krossanesi á dögunum en það gerir hann jafnan í lok veiðiferðar. Sólberg ÓF 1 kom nýr til landsins í maí mánuði árið 2017 en hann var smíðaður fyrir Ramma hf. í Tersanskipasmíðastöðinni í Tyrklandi. Sólberg ÓF 1 er 79,85 metrar … Halda áfram að lesa Sólberg ÓF 1
Gleðileg jól – Merry christmas – God jul – Feliz Navidas
Við Húsavíkurhöfn á Þorláksmessumorgni 20225. Með þessari mynd sem tekin var á Húsavík í gærmorgun fylgir jólakveðja til allra þeirra sem sækja síðuna heim. Merry Christmas to you all who visit this site with thanks for stopping by. God jul og tusinde tak til alle dem, der besøger hjemmesiden. Feliz Navidad a todos los que visitan este sitio … Halda áfram að lesa Gleðileg jól – Merry christmas – God jul – Feliz Navidas
Tekið við endanum
1487. Alli Júl ÞH 5 ex Ásbjörg RE 79. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1999. Þessi mynd var tekin í desembermánuði árið 1999 og sýnir Þórð heitinn Ásgeirsson taka á móti endanum hjá Alla Júl ÞH 5 sem sonarsonur hans, Þórður Birgisson, gerði út. Upphaflega hét báturinn Ásbjörg ST 7 frá Hólmavík en hún var síðust í röð 50 … Halda áfram að lesa Tekið við endanum
Hafdís ÞH 12
5434. Hafdís ÞH 12. Ljósmynd Sigurgeir Smári Harðarson. Ætla má að það sé um hálf öld síðan Geiri Harðar tók þessa mynd af Hafdísi ÞH 12 á Skjálfanda. Baldur Pálsson bátasmiður á Húsavík smíðaði Hafdísi ÞH 12 fyrir Jóstein Finnbogason árið 1951 og var hún sveinstykki Baldurs í bátasmíðinni. Hafdís var smíðuð úr furu og eik, … Halda áfram að lesa Hafdís ÞH 12









