Harðbakur EA 303

1412. Harðbakur EA 303. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skuttogarinn Harðbakur EA 303 var smíðaður í San Juan skammt frá San Sebastian á Norður-Spáni fyrir Útgerðarfélag Akureringa h/f. Harðbakur, sem var síðastur Spánartogaranna sex af stærri gerðinni, kom til heimahafnar á Akureyri þann 26. mars árið 1975. Útgerðarfélag Akureyringa h/f. fékk einnig næst síðasta skuttogarann sem smíðaður var … Halda áfram að lesa Harðbakur EA 303

Kópur BA 175

1063. Kópur BA 175 ex Kópur GK 175. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Línubáturinn Kópur BA 175 frá Tálknafirði kom til Húsavíkur í febrúarmánuði árið 2005 og þá voru þessar myndir teknar. Kópur hét upphaflega Tálknfirðingur BA 325 og var smíðaður í Noregi árið 1968. Eigandi Harðfrystihús Tálknafjarðar. Vorið 1980 kaupir Glettingur hf. í Þorlákshöfn bátinn … Halda áfram að lesa Kópur BA 175

Kópur GK 175

1063. Kópur GK 175 ex Jóhann Gíslason ÁR 41. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Kópur GK 175 hét upphaflega Tálknfirðingur BA 325 og var smíðaður í Noregi árið 1968. Eigandi hans Harðfrystihús Tálknafjarðar en vorið 1980 kaupir Glettingur hf. í Þorlákshöfn bátinn og nefnir Jóhann Gíslason ÁR 41. Um sumarið sama ár er hann seldur til Grindavíkur. … Halda áfram að lesa Kópur GK 175

Sigluvík SI 2

1349. Sigluvík Si 2. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson. Sigluvík SI 2 sést hér á toginu um árið en hún var einn Spánartogaranna af minni gerðinni og alla tíð gerð út frá Siglufirði. Togarinn var smíðaður fyrir Þormóð ramma h.f. á Siglufirði kom til landsins þann 7. apríl 1974.  Hann var smíðaður hjá Astiller skipasmíðastöðinni í Huelva … Halda áfram að lesa Sigluvík SI 2