Sæfari TH 271

5525. Sæfari TH 271. Ljósmynd úr einkasafni. Hér gefur að líta Sæfara TH 271 í fjörunni framan við hafnarstéttina á Húsavík en bátinn, sem síðar varð ÞH 271, lét Héðinn Maríusson smíða fyrir sig í Hafnarfirði árið 1962. Sæfari var smíðaður í bátastöðinni Bárunni og var fjögur tonn að stærð og búinn 25 hestafla Guldner … Halda áfram að lesa Sæfari TH 271

Jón Ásbjörnsson RE að draga línuna

2750. Jón Ásbjörnsson RE 777 ex Ragnar SF 550. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2026. Jón Steinar tók þessar myndir í dag en þær sýna Jón Ásbjörnsson RE 777 þar sem hann var draga línuna um tvær mílur úti fyrir Stokkseyri. Jón Ásbjörnsson RE 777 var smíðaður í Bátagerðinni Samtak árið 2008 og er af gerðinni … Halda áfram að lesa Jón Ásbjörnsson RE að draga línuna

Örfirisey RE 14

1030. Örfirisey RE 14. Ljósmynd úr einkasafni. Örfirisey RE 14 kemur hér að bryggju á Húsavík í febrúarmánuði árið 1967. Húsavík var fyrsta höfn sem hún kom í eftir heimsiglingu frá Hollandi þar sem skipið var smíðað, nánar tiltekið í Deest. Um Örfirisey má lesa hér og þar kemur m.a fram af hverju Húsavík var fyrsta höfnin … Halda áfram að lesa Örfirisey RE 14

Ágúst Guðmundsson GK 95

266. Ágúst Guðmundsson GK 95. Ljósmynd úr einkaafni. Hér kemur ein mynd frá síldarárunum og sýnri Ágúst Guðmundsson GK 95 úr Vogum koma drekkhlaðinn að landi á Raufarhöfn. Ágúst Guðmundsson GK 95 var smíðaður í Danmörku árið 1957 og var 55 brl. að stærð. Hann var smíðaður fyrir þá Guðmund, Magnús og Ragnar Ágústssyni í … Halda áfram að lesa Ágúst Guðmundsson GK 95