1345. Blængur NK 125 ex Freri RE 73. Ljósmynd Hákon U. Seljan Jóhannsson 2019. Hákon U. Seljan Jóhannsson yfirvélstjóri á Bergey VE 544 tók þessar myndir af frystitogaranum Blæng NK 125 í gær. Blængur NK 125 hét upphaflega Ingólfur Arnarson RE 210, einn stóru Spánartogaranna svokölluðu og sá eini sem er enn í fiskiskipaflotanum. 1345. … Halda áfram að lesa Blængur NK 125 á veiðislóðinni
Author: Hafþór Hreiðarsson
Snæfell EA 310
1351. Snæfell EA 310 ex Akureyrin EA 110. Ljósmynd Þór Jónsson. Nokkuð er um liðið frá því SnæfellEA 310 sótti björg í bú fyrir þjóðarbúið enda búið að skila sínu. Snæfell EA 310 var smíðað 1968 í Söviknes Verft A/S í Syvikgrend í Noregi fyrir Færeyinga og hét Stella Kristína. Keypt til landsins 1973 og fékk … Halda áfram að lesa Snæfell EA 310
Sigurvon ÍS 500
257. Sigurvon ÍS 500 ex Búðafell SU 90. Ljósmynd Sigurður Jóhannesson 1972. Á þessum myndum Sigurðar Jóhannessonar má sjá Sigurvon ÍS 500 leggja upp í róður frá Suðureyri við Súgandafjörð. Sigurvon var smíðuð í Risør í Noregi 1964 og var smíðuð fyrir samnefnt fyrirtæki í Reykjavík sem Sigurður Pétursson útgerðarmaður og Guðmundur Ibsen skipstjóri stóðu … Halda áfram að lesa Sigurvon ÍS 500
Sisimiut í Hafnarfirði
Sisimiut GR6-500 ex Arnar HU 1. Ljósmynd Magnús Jónsson 2019. Grænlenski togarinn Sisimiut GR6-500 kom til Hafnarfjarðar eldsnemma í gærmorgun. Eins og kunnugt er hefur Þorbjörn hf. í Grindavík keypt togarann sem fer nú í slipp og kemur niður sem Tómas Þorvaldsson GK 10. Togarinn var smíðaður í Noregi árið 1992 fyrir Skagstrending hf. á Skagaströnd og hét … Halda áfram að lesa Sisimiut í Hafnarfirði
Jói á Nesi SH 159
1964. Jói á Nesi SH 159. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Jói á Nesi SH 159 kemur til hafnar í Vestmannaeyjum um árið en hann var smíðaður í Póllandi árið 1988. Einn fjögurra báta sem smíðaðir voru fyrir Íslendinga þar á árunum 1987-1988 og þeirra stærstur og sá eini sem var yfirbyggður. Báturinn er 27,48 metrar að … Halda áfram að lesa Jói á Nesi SH 159
Skinney SF 20 kom til Reykjavíkur í morgun
2732. Skinney SF 20. Ljósmynd Óskar Franz 2019. Togbáturinn Skinney SF 20 sigldi í morgun frá Hafnarfirði til Reykjavíkur og náði Óskar Franz að fanga hann á kortið. Skinney SF 20 hefur verið í Hafnarfirði frá því hún kom til landsins frá Póllandi eftir lengingu ofl. breytingar. Í Hafnarfirði var sett vinnslulína á millidekkið en … Halda áfram að lesa Skinney SF 20 kom til Reykjavíkur í morgun
Sigurpáll ÞH 130 á leið upp í Húsavíkurslipp
1262. Sigurpáll ÞH 130 ex Guðbörg GK 517. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2008. Sigurpáll ÞH 130 í sleðanum á leið upp í slippinn á Húsavík 9 . júní árið 2008. Upphaflega Sjöfn ÞH 142 frá Grenivík, smíðuð í skipasmíðastöðinni Vör á Akureyri 1972. Síðar Ásgeir Torfason ÍS 96, Rúna RE 150, Óskar ÍS 68, Guðbjörg GK … Halda áfram að lesa Sigurpáll ÞH 130 á leið upp í Húsavíkurslipp
Dintelborg við Bökugarðinn
Dintelborg við Bökugarðinn. Ljósmynd Gaukur Hjartarson 2019. Hollenska flutningaskipið Dintelborg kom til Húsavíkur í gærmorgun með hráefnisfarm til PCC á Bakka. Skipið var smíðað árið 1999 í skipasmíðastöðinni Scheepswerf van Diepen í Hollandi, það er 133,41 metra langt, 15,85 metra breitt og mælist 8350 GT að stærð. Dintelborg siglir undir fána Hollands og hefur heimahöfn … Halda áfram að lesa Dintelborg við Bökugarðinn
Njarðvík KE 93
219. Njarðvík KE 93 ex Ljósfari GK 183. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Njarðvík KE 93 siglir hér til hafnar í Njarðvík á tíunda áratug síðustu aldar. Upphaflega aflaskipið Víðir II GK 275 úr Garði en hann var smíðaður í Noregi árið 1960 fyrir Guðmund Jónsson á Rafnkelsstöðum í Garði. Báturinn hét Víðir II GK 275 í … Halda áfram að lesa Njarðvík KE 93
Skipanes SH 608
57. Skipanes SH 608 ex Framnes ÍS 608. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson . Skipanes SH 608 er hér að draga netin á Breiðafirði á vetrarvertíð um árið. Upphaflega Framnes ÍS 608 frá Þingeyri, smíðaður í Noregi 1963, nánar tiltekið í Vaagland Baatbyggeri. Framnes var í eigu Kaupfélags Dýrfirðinga og kom til heimahafnar á Þingeyri 16. júní … Halda áfram að lesa Skipanes SH 608









