Fram kom í dag

IMO 9370018. Fram. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Norska leiðangursskipið Fram kom til Húsavíkur í morgun og það gerði einnig NG Explorer. Skipið er nefnt eftir skipi norsku landkönnuðanna Roald Amundsen og Fridtjof Nansen.  Fram var smíðað á Ítalíu árið 2007, skipið er 113 metrar að lengd, breidd þess er 26 metrar og það mælist 11,647 GT að stærð. … Halda áfram að lesa Fram kom í dag

Dalaröstin í skemmtisiglingu

1639. Dalaröst ÞH 40 ex Dalaröst ÁR 63. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2007. Þá er Sjómannadagurinn framundan og því upplagt að birta eina gamla mynd af Dalaröstinni í skemmtisiglingu á Skjálfanda árið 2007. Útgerðarfélagið Flóki ehf. keypti bátinn frá Þorlákshöfn árið 1999 en þar bar hann nafnið Dalaröst ÁR 63. Báturinn var smíðaður í Noregi 1978 … Halda áfram að lesa Dalaröstin í skemmtisiglingu

Valbjörn ÍS 307

1686. Valbjörn ÍS 307 ex Gunnbjörn ÍS 302. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Rækjubáturinn Valbjörn ÍS 307 kemur hér til hafnar á Húsavík í septembermánuði árið 2012. Það spáði brælu og bátarnir leituðu hafnar. Valbjörn var smíðaður í Njarðvík árið 1984 og hét upphaflega Haukur Böðvarsson ÍS 847. Báturinn, sem var 57 brl. að stærð og … Halda áfram að lesa Valbjörn ÍS 307

Haförn og Naustavík

1334. Haförn EA 155 - 1417. Naustavík EA 151 ex Sólrún EA 251. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér liggja saman við bryggju á Akureyri síðustu tveir eikarbátarnir sem Skipasmíðastöð KEA smíðaði. Haförn EA 155 er sá sem liggur við bryggjuna og utan á honum Naustavík EA 151 sem upphaflega hét Sólrún EA 251. Báðir bátarnir smíðaðir … Halda áfram að lesa Haförn og Naustavík