Þorleifur Jónsson HF 12

1121. Þorleifur Jónsson HF 12 ex Ársæll Sigurðsson HF 12. Ljósmynd Vigfús Markússon. Þorleifur Jónsson HF 12 hét upphaflega Milly Ekkenga SG 1 og var í eigu þýskrar útgerðar en fékk nafnið Dagný SI 70 þegar Togskip hf. á Siglufirði keypti togarann til landsins árið 1970.  Skipið var 385 brl. og smíðað í De Dageraadskipasmíðastöðinni í Woubrugge … Halda áfram að lesa Þorleifur Jónsson HF 12

María Júlía í Húsavíkurslipp

151. María Júlía í Húsavíkurslipp. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025 Hér gefur að líta fremst á myndinni Maríu Júlíu sem tekin var upp í slipp á Húsavík í byrjun september. María Júlía er smíðuð úr eik í Frederikssund í Danmörku árið 1950 og er 108 brl. að stærð. Með því að smella á myndina er hægt að … Halda áfram að lesa María Júlía í Húsavíkurslipp

Vinur

3048. Vinur ex Øyglimt. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Hvalaskoðunarbáturinn Vinur sem Sjóferðir Arnars á Húsavík gera út leggur hér upp í morgunferð dagsins í dag. Sjóferðir Arnars keypti bátinn frá Noregi fyrr á árinu en Vinur er rúmlega 20 metrar að lengd og tekur 48 farþega. Báturinn var úr smíðaður úr plasti árið 1980 og hét … Halda áfram að lesa Vinur

Hafbjörg VE 115

903. Hafbjörg VE 115 ex Hafbjörg ÁR 16. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Hafbjörg VE 115 hét upphaflega Cæsar ÍS 47 og var smíðaður í Skipasmíðastöð Marselíusar Bernharðssonar hf. Ísafirði árið 1942.  Hafbjörg var síðasta nafn bátsins sem bar alls sjö nöfn í gegnum tíðina en allmarga einkennisstafi og númer. Um það má lesa hér en báturinn, … Halda áfram að lesa Hafbjörg VE 115

Eiður ÓF 13

1611. Eiður ÓF 13 ex Eiður EA 13. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009. Dragnótabáturinn Eiður ÓF 13 kemur hér til hafnar á Húsavík vorið 2009 en upphaflega hét hann Valur RE 7. Báturinn var smíðaður í Bátalóni í Hafnarfirði og var afhentur frá stöðinni árið 1982. Hann var síðan lengdur og breikkaður árið 1996. Árið 1989 … Halda áfram að lesa Eiður ÓF 13