1986. Ísak AK 67 ex Bryndís SH 231. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Ísak AK 67 hét upphaflega Bensi BA 46 og var smíðaður í Bátalóni í Hafnarfirði árið 1988. Báturinn, sem smíðaður var fyrir Leif Halldórsson á Patreksfirði, var lengdur árið 1995 og mælist eftir það rúmlega 11 brl. að stærð. Bensi BA 46 var seldur … Halda áfram að lesa Ísak AK 67
Author: Hafþór Hreiðarsson
Þórður Jónasson í Krossanesi
264. Þórður Jónasson EA 350 ex Þórður Jónasson RE 350. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Loðnuskipið Þórður Jónasson EA 350 sést hér við bryggju í Krossanesi þar sem verið var að landa úr því. Þórður Jónasson, sem smíðaður var í Noregi og kom til Akureyrar í júníbyrjun árið 1964, var upphaflega RE 350. Hann var smíðaður fyrir … Halda áfram að lesa Þórður Jónasson í Krossanesi
Guðrún GK 37
243. Guðrún GK 37. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Guðrún GK 37 var smíðuð í Noregi árið 1964 fyrir Ása hf. í Hafnarfirði sem átti skipið til ársins 1989 en þá var hún seld til Vestmannaeyja. Guðrún var 231 brl. að stærð en árið 1968 var hún endurmæld og varð þá 182 brl. að stærð. Í bátnum … Halda áfram að lesa Guðrún GK 37
Huginn í Krossanesi
1411. Huginn VE 55. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Huginn VE 55 liggur hér við bryggju í Krossanesi við Akureyri á síðustu öld en hann kom nýr til heimahafnar í Vestmannaeyjum 30. janúar árið 1975. Huginn var smíðaður hjá Baatservice Verft A/S, í Mandal í Noregi, smíðanúmer 617, og var nr. tvö í raðsmíði fjögurra skipa hjá stöðinni fyrir íslenska útgerðaraðila. Eigandi skipsins var Huginn h.f í … Halda áfram að lesa Huginn í Krossanesi
Gunnar Hámundarson GK 357
500. Gunnar Hámundarson GK 357. Ljósmynd Hafþor Hreiðarsson. Gunnar Hámundarson GK 357 kemur hér að landi í Keflavík um árið en hann var með heimahöfn í Garði. Báturinn var smíðaður árið 1954 í Ytri Njarðvík. Hann var með smíðanúmer 1 hjá Skipasmíðastöð Njarðvíkur og er 53 brl. að stærð Gunnar Hámundarson GK 500 var seldur … Halda áfram að lesa Gunnar Hámundarson GK 357
Júpíter ÞH 363
2463. Júpíter ÞH 363 ex Jupiter II FD 235. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Júpíter ÞH 363 var keyptur frá Færeyjum haustið 2004 og kom til heimahafnar á Þórshöfn í október það ár. Í Verinu, sjávarútvegsblaði Morgunblaðsins sagði: NÝTT skip bættist í flota Þórshafnar þegar Júpíter ÞH-363 sigldi í heimahöfn. Fjölmenni var á hafnarbakkanum til að … Halda áfram að lesa Júpíter ÞH 363
Gleðilegt nýtt ár – Happy new year
Húsavík 2003. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skipamyndir.com óskar öllum þeim sem sækja síðuna heim gleðilegs nýs árs með þökk fyrir innlitið á því gamla sem nú er liðið í aldanna skaut. Með því að smella á myndina, sem er ríflega tuttugu ára gömul, er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images … Halda áfram að lesa Gleðilegt nýtt ár – Happy new year
Hafberg GK 377
67. Hafberg GK 377 ex Guðrún Jónsdóttir ÍS 267. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Síðustu myndina sem ég birti á þessu ári tók pabbi heitinn í Breiðafirði um árið og sýnir Hafberg GK 377 frá Grindavík. Færslurnar á síðunni þetta árið eru um 370 eða rúmlega ein á dag og hefur þessi bátur birst amk. í tvígang … Halda áfram að lesa Hafberg GK 377
Búrfell KE 140
17. Búrfell KE 140 ex Búrfell ÁR 40. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Búrfell KE 140 var hér myndað af löngu færi um árið þegar síldveiðar voru stundaðar innan fjarða fyrir austan. Upphaflega Ásbjörn RE 400, smíðaður fyrir Ísbjörninn hf. í Noregi árið 1963. Í árslok 1971 var Búrfellið selt Þorláksvör hf. í Þorlákshöfn og varð þá … Halda áfram að lesa Búrfell KE 140
Sighvatur GK 57
975. Sighvatur GK 57 ex Bjartur. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Sighvatur GK 57 á siglingu á Breiðafirði á vetrarvertíðinni 1982 frekar en þrjú. Sighvatur hét upphaflega Bjartur NK 121 og var einn átján báta sem smíðaðir voru fyrir Íslendinga í Boizenburg á árunum 1964-1967. Samkvæmt bókaröðinni Íslensk skip eignaðist Vísir hf. bátinn í ársbyrjun 1982 en … Halda áfram að lesa Sighvatur GK 57









