Víðir HF 201

1376. Víðir HF 201 ex Apríl HF 347. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Víðir HF 201 var smíðaður hjá Gdynia skipasmíðastöðinni í Póllandi árið 1974 og hét upphaflega Ver AK 200. Eigandi Krossvík hf. á Akranesi.

Ver, sem var einn af sjö togurum sem skipasmíðastöðin smíðaði fyrir Íslendinga og afhenti á árunum 1972 til 1974, var leigður Landhelgisgæslunni til gæslustarfa vorið 1976 og síðan seldur Samherja hf. í Grindavík í desember sama ár. Hann fékk nafnið Jón Dan GK 141.

Í ársbyrjun árið 1981 var togarinn seldur Bæjarútgerð Hafnarfjarðar og fékk nafnið Apríl HF 347. Vorið 1986 var Apríl seldur Hvaleyri hf. og fékk nafnið Víðir HF 201.

Víðir komst síðar í eigu Samherja hf. og fékk einkennisstafina EA 910 í lok árs 1990.

Í ársbyrjun 1992 kom hann til heimahafnar eftir gagngerar breytingar í Póllandi þar sem hann var m.a lengdur um tæpa níu metra. Honum var einnig breytt í frystitogara.

Haukur Sigtryggur sendi miða:

1376….Ver AK 200… TF-RD.
IMO: 7336678.
MMSI: 251127110.

Skipasmíðastöð: Komuny Parpy Skirj. Gdynia. Póllandi. 1974.
1976 = Brúttó: 741. U-þilfari: 520. Nettó: 241.
Lengd: 60,44. Breidd: 11,32. Dýpt: 6,21.

Smíðanúmer B425 / 204.
Mótor 1974 Sulzer Zgoda 2207 kw. 3000 hö.

Ver AK 200. Útg: Krossvík h.f. Akranesi. (1974 – 1976).
Ver AK. Útg: Landhelgisgæsla Íslands. Reykjavík. (1976).
Jón Dan GK 141. Útg: Samherji h.f. Grindavík. (1976 -1981).

Apríl HF 347. Útg: Bæjarútgerð Hafnarfjarðar. Hafnarfirði. (1981 – 1986).
Víðir HF 201. Útg: Hvaleyri h.f. Hafnarfirði. (1986 – 1990).
Víðir EA 910. Útg: Samherji h.f. Akureyri. (1990 – 2008).

Seldur úr landi 27.09.2008.
Víðir. Útg: ? Strandtral. Aalesund. Noregi. (2008 – 2010).
Seldur í brotajárn til Fornaes 19.11.2010.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd