
Björg EA 7, ísfisktogari Samherja, heldur hér til veiða eftir löndun á Akureyri í morgun.
Björg var síðust í röð fjögurra systurskipa sem smíðuð voru hjá Cemre-skipasmíðastöðinni í Tyrklandi og afhent á árinu 2017.
Kaldbakur EA 1 kom fyrstur, síðan Björgúlfur EA 312 og því næst Drangey SK 2 og að lokum Björg EA 7 eins áður segir.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution