Gosi ÞH 9

5432. Gosi ÞH 9 ex Rúna EA 41. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Biggi Lúlla lætur hér úr höfn á Gosa sínum um árið en báturinn hét upphaflega Rúna EA 41 og var smíðaður af Baldri Halldórssyni á Hlíðarenda við Akureyri árið 1963.

Báturinn var 3 brl. að stærð og var smíðaður fyrir Bjarna Þorvaldsson á Akureyri sem átti hann til ársins 1968 en þá var hann seldur til Húsavíkur.

Hér á Húsavík hét báturinn í fyrstu Palli ÞH 9 en frá árinu 1971 Gosi ÞH 9 og var í eigu Birgis Lúðvíkssonar.

Gosi var dæmdur ónýtur og tekinn af skrá 18. desember 2000. Heimild: aba.is

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd