María ÞH 47

5971. María ÞH 47 ex Gunnhildur. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026.

María ÞH 47 hét upphaflega Sæunn Helga RE 68 og var smíðuð hjá Skel hf. í Kópavogi árið 1979.

Síðar bar hann nöfnin Ölver RE 268, Von AK 74, Göltur SH 142, Dofri ST 35 og Gunnhildur RE 129.

Árið 2008 eignaðist Hörður Þórhallsson á Akureyri bátinn sem hét áfram Gunnhildur.

Báturinn hefur borið nafnið María ÞH 47 frá árinu 2020 og er í eigu Eiðs Péturssonar á Húsavík.

Heimild. aba.is

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd