
Norska varðskipið Hopen kom til Húsavíkur sl. mánudag og lagðist að Bökugarði.
Skipið hefur verið á siglingu um Norður-Atlantshafið undanfarið og æft m.a. með bandarísku og kanadísku strandgæslunni. Nú síðast kom skipið svo til Íslands í samstarfi við Landhelgisgæsluna.
Á fésbókarsíðu Slökkviliðs Norðurþings segir frá heimsókn skipsins til Húsavíkur:
Tengslafulltrúi LHG um borð í Hopen hafði samband við slökkviliðið til að athuga hvort hluti áhafnar gæti mögulega fengið að komast í æfingasvæði okkar hér á Húsavík. Áhafnir varðskipa Landhelgisgæslunnar hafa áður fengið að æfa
þar. Það var auðsótt mál og tókum við á móti tveimur hópum frá skipinu sem æfðu blinda reykköfun og björgun. Áhafnarmeðlimir voru alsælir með æfinguna og hrifnir af þessari aðstöðu sem við erum að byggja upp. Í þakkarskyni var slökkviliðsmönnum okkar boðið að koma í skoðunarferð um skipið og voru það nokkrir sem gátu þegið það boð.
KV Hopen var tekið í notkun 2024 og er það þriðja og síðasta í röðinni af svokölluðum Jan Mayen skipum sem öll eru nefnd eftir norskum heimskautaeyjum, Jan Mayen, Bjarnarey og Hopen. S
kipið er 136 metra langt og 22 metra breitt. Það getur hýst allt að 100 manns í áhöfn. Skipið er sérhannað til siglinga um heimskautahöf og er sérstaklega styrkt til að sigla í ís. Það er útbúið þyrlupalli og þyrluskýli en meiningin er að bráðlega verði Seahawk björgunarþyrla með fast aðsetur í skipinu.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution