Sara ÍS 186

1637. Sara ÍS 186 ex Sara GK 86. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026.

Sara ÍS 186 frá Suðureyri hét upphaflega Ebbi AK 37 og var smíðuð í Englandi árið 1982.

Báturinn var upphaflega 9 brl. að stærð en eftir lengingu og aðrar breytingar mælist hann nú tæpar 12 brl. að stærð.

Í lok árs 2006 fær báturinn nafnið Ebbi II AK 137 en vorið 2008 var hann seldur til Ólafsvíkur þar sem hann fékk nafnið Úlla SH 269.

Á árunum 2012 til 2021 bar báturinn nöfnin Staðarberg GK 85, Stakkavík GK 85 og Hópsnes GK 85 en sumarið 2021 fékk báturinn nafnið Sara GK 86.

Það var svo vorið 2022 sem Sara verður ÍS 186.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd