Spænska hafrannsóknarskipið Odón de Buen

IMO 9962914. Odón de Buen við bryggju í Reykjavík. Ljósmynd Magnús Jónsson 2026.

Maggi Jóns tók á dögunum þessa mynd af spænska hafrannsóknarskipinu Odón de Buen þar sem það lá við bryggju í Reykjavíkurhöfn.

Skipið var smíðað í Astilleros Armon skipasmíðastöðinni í Vigo á Spáni árið 2024 en Vigo er einnig heimahöfn skipsins.

Odón de Buen er tæpir 85 metrar að lengd og 18 metra breitt og er stærsta hafrannsóknarskip Spánverja.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd