
Viktoría ÍS 150 er einn þeirra báta sem rær á strandveiðum frá Suðureyri og hér kemur hún að landi fyrir skömmu.
Báturinn hét upphaflega Guðbjartur SH 45 frá Hellisandi og var smíaðður hjá Bátagerðinni Samtak í Hafnarfirði árið 2003.
Árið 2019 fékk báturinn nafnið Guðlaugur SH 374 með heimahöfn í Ólafsvík en vorið 2023 fékk hann nafnið Gvendur SH 106. Heimahöfnin áfram Ólafsvík.
Um haustið sama ár fékk báturinn nafnið Viktoría ÍS 150 með heimahöfn á Suðureyri við Súgandafjörð.


Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution