
Hugrún DA 1 liggur hér við bryggju í Búðardal fyrir skömmu en þar á báturinn sína heimahöfn.
Báturinn hét upphaflega Bárður SH 81 frá Arnarstapa smíðaður af Baldri Halldórssyni á Hlíðarenda við Akureyri árið 1988.
Báturinn var í upphafi 8 brl. að stærð en árið 1993 var hann lengdur að mældist eftir það 10 brl. að stærð.
Árið 2001 var Bárður SH 181 en sex árum síðar fékk hann nafnið Rán SH 66 með heimahöfn á Grundarfirði.
Frá árinu 2013 hefur báturinn borið nafnið Hugrún DA 1.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.