Bolette á Skjálfanda

IMO 9188037. Bolette ex Amsterdam. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026.

Farþegaskipið Bolette liggur hér við akkeri fram undan höfninni á Húsavík en það er gert út af Fred Olsen Cruise Lines með heimahöfn í Nassau á Bahamaeyjum.

Skipið var smíðað á Ítalíu árið 2000 og hét áður Amsterdam en fékk núverandi nafn árið 2020.

Bolette er 237,9 metrar að lengd, breidd skipsins er 32.35 matrar og það mælist 62,735 GT að stærð.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd