Landað úr Sigurþór GK

Sigurþór GK 43 ex Árni ÓF 44. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér er verið að landa úr netabátnum Sigurþór GK 43 í Grindavíkurhöfn en þaðan var báturinn gerður út árin 1983 til 1991. Sigurþór hét upphaflega Árni ÓF 44 og var smíðaður 1975 hjá Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd. Báturinn, sem var rétt tæplega 30 brl. … Halda áfram að lesa Landað úr Sigurþór GK →

Reginn HF 228

1102. Reginn HF 228 ex Húni HU 62. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Reginn HF 228 er hér á siglingu innann hafnar í Þorlákshöfn sumarið 2004 en það sama ár fékk hann einkennisstafina ÁR 228. Báturinn hét upphaflega Símon Olsen ÍS 33 og var smíðaður 1970 í Skipasmíðastöð Marselíusar Bernharðssonar hf. á Ísafirði. Báturinn hefur einnig … Halda áfram að lesa Reginn HF 228 →

Pési

9832. Pési ex Litli Latur EA 90. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2013. Pétur Fornason í Fornhaga í Aðaldal heldur hér út á Skjálfandaflóa á Pésa sínum sumarið 2013 en Þorgrímur Hermannsson skipasmiður á Hofsósi smíðaði bátinn árið 1984. Báturinn fékk nafnið Litli Latur en eigandi hans var Vilhjálmur Sigtryggsson á Húsavík sem átti hann í stuttan … Halda áfram að lesa Pési →

Sjöfn EA 142

1848. Sjöfn EA 142 ex Sæbjörg EA 184. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2007. Dragnótabáturinn Sjöfn EA 142 frá Grenivík kemur hér til hafnar á Húsavík í septemberbyrjun árið 2007. Báturinn hét upphaflega Helga Sigmars NS 6 og var smíðaður í Vélsmiðju Seyðisfjarðar árið 1987. Helga Sigmars var lengd árið1997 og mældist eftir það 15 brl. að … Halda áfram að lesa Sjöfn EA 142 →

Bergur Vigfús GK 53

Bergur Vigfús GK 53 ex Keflvíkingur KE 100. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Bergur Vigfús GK 53 hét upphaflega Keflvíkingur KE 100 og var hann fyrstur í röð átján báta sem Þjóðverjar smíðuðu fyrir Íslendinga í Boizenburg á árunum 1964-1967.  Keflvíkingur KE 100 hét þessu nafni í rúmlega 30 ár en báturinn var lengdur og yfirbyggður árið 1978 … Halda áfram að lesa Bergur Vigfús GK 53 →