Kópur GK 19

1930. Kópur GK 19 ex Ívar SH 324. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005.

Kópur GK 19 hét upphaflega Jón Pétur ST 21 og var smíðaður í Skipasmiðjunni Herði hf. í Njarðvík árið 1988.

Báturinn, sem var 10 brl. að stærð, var með heimahöfn á Hólmavík en það stóð ekki lengi því haustið 1988 var hann seldur til Ólafsvíkur og fékk hann nafnið Ívar SH 287.

Báturinn var lengdur árið 1991 og mældist eftir það tæplega 12 brl. að stærð en um það leyti var Ívar kominn til Neskaupstaðar þar sem hann fékk einkennisstafina NK og númerið 124.

Rétt fyrir aldarmótin var Ívar aftur kominn á Snæfellsnesið og var nú SH 324 og heimahöfnin lengst af Ólafsvík.

Það var svo árið 2003 sem báturinn fékk það nafn sem hann ber á myndinni, Kópur GK 19, og heimahöfnin Í Sandgerði.

Frá árinu 2005 hét báturinn Dísa GK 19 og bar það nafn þegar hann var seldur til Færeyja og tekinn af skipaskrá í febrúar árið 2010.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

1 athugasemd á “Kópur GK 19

Færðu inn athugasemd